Skip to main content

Foreldrar virkjaðir í baráttu við stam

Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent í talmeinafræði

„Undanfarin 20 ár hef ég unnið að því að finna leiðir til að hjálpa þeim sem stama að ná betri tökum á því hvernig þeir tala. Ég veit hvað stam getur haft mikil áhrif á líf þeirra og mig langar til að stuðla að því að bæta lífsgæði þeirra,“ segir Jóhanna Thelma Einarsdóttir, dósent í talmeinafræði, sem vinnur að rannsókn á áhrifum nýrrar meðferðarleiðar þar sem foreldrar eru virkjaðir í að vinna bug á stami hjá börnum sínum á grunnskólaaldri.

„Kveikjan að verkefninu er komin frá læriföður mínum, dr. Roger Ingham við University of California í Santa Barbara, en hann hefur verið frumkvöðull í rannsóknum á stami síðastliðin 40 ár,“ segir Jóhanna. Hún bætir við að jafnframt hafi verið kallað eftir rannsóknum þar sem meðferðarleiðir við stami hjá börnum á grunnskólaaldri séu kannaðar með markvissum hætti.

Jóhanna Thelma Einarsdóttir

Jóhanna vinnur að rannsókn á áhrifum nýrrar meðferðarleiðar þar sem foreldrar eru virkjaðir í að vinna bug á stami hjá börnum sínum á grunnskólaaldri.

Jóhanna Thelma Einarsdóttir

Segja má að Jóhanna hafi verið brautryðjandi í rannsóknum á stami á Íslandi og hefur hún verið einkar öflug að miðla rannsóknum og þekkingu sinni innan lands. Svo öflug reyndar að Málbjörg, félag um stam á Íslandi, veitti henni heiðursverðlaun árið 2014 fyrir margþættar rannsóknir á stami og fyrir að hafa aðstoðað ófáa Íslendinga sem glímt hafa við stam. Þá hefur hún ásamt fleirum unnið að uppbyggingu náms í talmeinafræði við Háskóla Íslands.

Meðferðarleiðin sem Jóhanna rannsakar ásamt samstarfsfólki byggist á því að kenna börnunum að stoppa stamið og auka þar með talflæðið og þar gegna foreldrar lykilhlutverki. „Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar lofa mjög góðu en einungis tveir einstaklingar eru búnir að ljúka fyrsta hluta hennar. Allar tölur benda til að stamið minnki mjög mikið, ekki bara við þjálfun heldur einnig í daglegum samskiptum. Enn fremur eru börn og foreldrar í báðum tilvikum mjög ánægð með að hafa fengið tækifæri til að vera með,” segir Jóhanna.

Jóhanna segir að ef meðferðarleiðin reynist eins vel og allt bendi til muni það vafalaust hafa áhrif á hvernig unnið verður með stam í framtíðinni. „Niðurstöður munu enn fremur kalla á taugafræðilegar rannsóknir á því hvernig heilinn bregst við slíku inngripi,“ segir Jóhanna um framhaldið.