Hróbjartur Árnason, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild
„Háskólar geta ekki lengur litið á sig sem grunnmenntastofnanir þangað sem ungt fólk kemur til að verða sér úti um starfsmenntun, fer síðan út á vinnumarkaðinn og kveður háskólann fyrir fullt og allt. Aðstæður í samfélaginu í heild og sérstaklega á vinnumarkaði breytast núorðið svo ört að þörf samfélagsins fyrir aukna og nýja hæfni og færni fólks er orðin svo aðkallandi að fullorðið fólk leggur í auknum mæli á sig ómælda vinnu til að bæta við sig þekkingu og hæfni með því að leita til háskólanna enda er þar mest að sækja.“ Þetta segir Hróbjartur Árnason, lektor í kennslufræði fullorðinna, sem vinnur að því að þróa notkun fjarfundakerfa á netinu til þess að auka sveigjanleika í námi og kennslu í skólanum.
Hróbjartur Árnason
„Háskólar geta ekki lengur litið á sig sem grunnmenntastofnanir þangað sem ungt fólk kemur til að verða sér úti um starfsmenntun, fer síðan út á vinnumarkaðinn og kveður háskólann fyrir fullt og allt.“

Menntavísindasvið hefur boðið upp á fjarnám en því var komið á laggirnar til að bæta aðgengi fólks á landsbyggðinni að námi og styrkja kennarastéttina. Sjálfur hefur Hróbjartur fengist við fjarkennslu í 15 ár og notað fjarfundakerfi mikið síðastliðin fimm ár.
„Þar hef ég séð möguleika þess að nota slík verkfæri til að auka bæði sveigjanleika minn en sérstaklega nemenda minna. Fjarnemendur geta orðið veðurtepptir eða hafa ekki efni á að fljúga til Reykjavíkur mörgum sinnum á misseri þannig að það hefur komið þeim vel,“ segir hann.
Hróbjartur bendir á að fjarnám verði sífellt vinsælla, ekki bara á landsbyggðinni heldur líka á höfuðborgarsvæðinu. Í tilraunaverkefninu verður fjarfundakerfið Adobe Connect, sem allir sem hafa netfang við háskólann geta notað, nýtt til að tengja saman, á sama tíma, fólk á mörgum ólíkum stöðum. „Í sumum tilfellum situr hópur nemenda með kennara í kennslustofu í háskólanum meðan aðrir taka þátt í gegnum tölvuna sína eða snjall- síma, hvort sem þeir eru staddir í næsta húsi, úti á landi eða erlendis,“ segir Hróbjartur.
Með verkefninu vonast hann til að að koma ákveðnum fjölda kennara yfir „þröskuldinn“ þannig að þeir treysti sér til að nota þennan búnað og jafnframt hyggst hann setja saman safn leiðbeininga, aðferða og ferla sem kennarar og tæknifólk við skólann geti nýtt sér við ákvarðanir, skipulagningu og kennslu.
Hróbjartur er ekki í vafa um margþætt gildi verkefnisins. „Með þessari tilraun og ígrundun okkar á henni munum við enn fremur geta stuðlað að umræðum um hlutverk og stöðu háskóla í starfsþróun á Íslandi og síðast en ekki síst bætt við einu verkfæri í verkfærakistu háskólakennara.“ Nánari upplýsingar má finna á menntasmidja.hi.is.