Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir doktorsnemi og Rannveig Traustadóttir prófessor, báðar við Félags- og mannvísindadeild
Rannsóknir sýna að fatlaðar konur eru líklegri til að verða fyrir ofbeldi en aðrar konur og þá hefur einnig komið í ljós að aðgengi fatlaðra kvenna að stuðningsúrræðum fyrir þolendur ofbeldis á Íslandi er ábótavant. Þær Rannveig Traustadóttir prófessor og Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir doktorsnemi stunda rannsóknir í fötlunarfræðum og hafa brennandi áhuga á málaflokknum. Þær tóku nýverið þátt í viðamikilli evrópskri rannsókn sem miðar að því að afla þekkingar á ofbeldi gegn fötluðum konum og aðgengi þerra að stuðningi.
„Við lögðum áherslu á að niðurstöður verkefnisins yrðu notaðar til að vinna hagnýtt efni sem gæti nýst við skipulag aðgerða í þágu fatlaðra kvenna sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Við söfnuðum ítarlegum upplýsingum um reynslu fatlaðra kvenna af ofbeldi og reynslu þeirra sem styðja brotaþola. Í framhaldi af því þróuðum við leiðbeinandi viðmið svo stuðningur verði árangursríkari og settum einnig fram tillögur að því hvernig bæta megi aðgengi fatlaðra kvenna, sem eru þolendur ofbeldis, að stuðningsúrræðum,“ segir Rannveig.
Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir og Rannveig Traustadóttir
„Rannsóknin afhjúpar valdaleysi fatlaðra kvenna, laka félagslega stöðu þeirra, alvarlegt ofbeldi og margþætta mismunun sem þær búa við.“

Upphaf rannsóknarinnar rekur Rannveig til þess að Freyja Haraldsdóttir, þá meistaranemi við Háskóla Íslands og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks, leitaði til Rannsóknaseturs í fötlunarfræðum um að taka þátt í þessu samstarfsverkefni . „Meginstyrkur verkefnisins er sá að það var frá upphafi unnið í nánu samstarfi við fatlaðar konur sem bæði sátu í ráðgjafahópi og tóku þátt í gagnasöfnun. Fatlaðar konur eru auðvitað sérfræðingar í eigin lífi og reynslu. Þá tóku fulltrúar stuðningsúrræða einnig virkan þátt í verkefninu,“ segir Hrafnhildur.
Rannveig bendir á að gildi rannsóknarinnar felist einkum í því að afla þekkingar á þáttum sam áður hafa verið huldir sjónum eða þaggaðir niður. „Rannsóknin afhjúpar valdaleysi fatlaðra kvenna, laka félagslega stöðu þeirra, alvarlegt ofbeldi og margþætta mismunun sem þær búa við. Hagnýtt gildi rannsóknarinnar má finna í fjölmörgum tillögum um stefnumótun, fyrirbyggjandi aðgerðir og árangursríkan stuðning,“ segir hún.
Flestir sem vinna rannsóknir á sviði fötlunarfræða byggja þær á sjónarhorni mannréttinda í þeirri trú að rannsóknir skapi þekkingu sem geti lagt grunn að betra samfélagi fyrir alla. „Okkar rannsóknir eru engin undantekning. Þær beinast að fötluðu fólki sem er sá hópur í íslensku samfélagi sem býr við einna mesta mismunun og félagslega útskúfun. Við viljum leggja okkar af mörkum til að breyta því,“ segja þær Rannveig og Hrafnhildur að lokum.