Ásgeir Tryggvason, MS-nemi við Hagfræðideild
„Það er mikilvægt að fyrirtæki gleymi ekki að huga að starfsöryggi í þenslu,“ segir Ásgeir Tryggvason, MS-nemi í hagfræði. Ásgeir rannsakar samband vinnuslysa og hagsveiflna á Íslandi frá 1986 til 2011 og notar til þess gögn úr slysaskrá Vinnueftirlitsins og Slysaskrá Íslands annars vegar og gögn frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun hins vegar til að meta hagsveiflur. „Sambandið met ég bæði með svokallaðri línulegri aðhvarfs- greiningu og hlutfallslegri áhættu,“ útskýrir Ásgeir.
Ásgeir Tryggvason
Ásgeir rannsakar samband vinnuslysa og hagsveiflna á Íslandi frá 1986 til 2011 og notar til þess gögn úr slysaskrá Vinnueftirlitsins og Slysaskrá Íslands annars vegar og gögn frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun hins vegar til að meta hagsveiflur.

Hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar Ásgeir las grein í heilsuhagfræði sem fjallaði um sama viðfangsefni í Austurríki. „Áður en ég las greinina fannst mér liggja beinast við að slysum fjölgaði í uppsveiflu vegna þess að atvinnuþátttaka er þá meiri og fólk vinnur lengri vinnudaga. Þessi grein sýndi hins vegar fram á aðra hvata sem voru að verki, nefnilega að tilkynningarhegðun fólks er öðruvísi í þenslu en hún er í kreppu. Starfsmaður er síður líklegur til að tilkynna minni háttar vinnuslys í kreppu vegna þess að það getur litið illa út fyrir hann þegar kemur að uppsögnum. Þetta þótti mér strax áhugavert og þegar ég komst að því að efnið hafði ekki verið rannsakað áður á Íslandi ákvað ég að vinda mér í rannsóknina,“ segir Ásgeir.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að vinnuslysum fjölgi í þenslu. „Karlar lenda frekar í vinnuslysum en konur, sérstaklega í verslun og byggingariðnaði. Niðurstöðurnar sýna einnig að ástæða þess að vinnuslysum fjölgar í þenslu eru þættir eins og stress og aukinn vinnuhraði frekar en aukin atvinnuþátttaka. Niðurstöðurnar eru áminning um að fyrirtæki mega ekki gleyma að huga að öryggisatriðum þegar vel gengur og að auknu stressi og vinnuhraða getur fylgt aukin hætta á vinnuslysum,“ segir Ásgeir.
Leiðbeinandi: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Hagfræðideild.