Skip to main content

„Ekki garga á dómarann!“

Unnur Ýr Kristinsdóttir, BA frá Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild  

Ert þú foreldri sem lætur dómarann fá það óþvegið með kraftmiklum bendingum úr stúkunni? Sýnir þú íþróttaiðkun barnsins áhuga og styður íþróttastarfið eftir fremsta megni? Vissir þú að það er munur á því hvort þú veitir barninu hvatningu eða hrós og að þrýstingur er ekki það sama og stuðningur?.

Unnur Ýr Kristinsdóttir

„Í flestum tilfellum er þátttaka foreldra af hinu góða en hún getur einnig haft neikvæð áhrif ef foreldrar eru illa upplýstir og hegða sér óviðeigandi.“

Unnur Ýr Kristinsdóttir

Álitamál á borð við þessi eru viðfangsefni lokaverkefnis Unnar Ýrar Kristinsdóttur sem lauk BA-prófi í tómstunda- og félagsmálafræði vorið 2013. Unnur skoðaði hlutverk foreldra ungra íþróttaiðkenda og bjó til bæklinginn Þú getur skipt máli – leiðarvísir fyrir foreldra barna sem stunda íþróttir. Bæklingurinn er ætlaður foreldrum barna á aldrinum 6–12 ára en þá er hlutverk foreldra í íþróttaiðkun barnanna alla jafna hvað stærst. „Ég vil vekja foreldra til umhugsunar um mikilvægi þeirra þegar kemur að íþróttaiðkun barna þeirra,“ segir Unnur.

Áhugi hennar á efninu kviknaði eftir að hafa setið kynningu hjá umboðsmanni barna um nauðsyn þess að foreldrar fengju fræðslu um stuðningshlutverk sitt á þessu sviði. Unni þótti umræðan í samfélaginu um hegðun foreldra á íþróttaviðburðum vera mjög neikvæð og vildi reyna að nálgast efnið uppbyggilega. „Í flestum tilfellum er þátttaka foreldra af hinu góða en hún getur einnig haft neikvæð áhrif ef foreldrar eru illa upplýstir og hegða sér óviðeigandi,“ segir Unnur og bætir við að íþróttaiðkun barna geti verið frábært tækifæri fyrir foreldra. „Íþróttaiðkunin er tækifæri til að rækta samskiptin og vera hluti af spennandi og skemmtilegri hreyfingu barnsins.“

Unnur telur að þörf hafi verið á almennum leiðarvísi fyrir foreldra sem væri gagnlegur, óháð því um hvaða íþróttagrein er að ræða. „Við viljum skapa gott íþróttaumhverfi fyrir börnin og stór hluti af því er að veita foreldrum viðeigandi upplýsingar og fræðslu,“ segir Unnur.

Leiðbeinandi: Guðmundur Sæmundsson, aðjunkt við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild