Ragnar Atli Tómasson og Johan Sindri Hansen, BS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Það er stundum sagt að háskólar séu vagga nýsköpunar og sprotafyrirtækja enda fara þar saman rannsóknir á hinu ókunna og vilji bæði starfsfólks og stúdenta til að afla nýrrar þekkingar sem nýta má í þágu samfélagsins. Fjölmargar hugmyndir að atvinnuskapandi verkefnum kvikna á hverju ári í Háskóla Íslands og ná jafnvel flugi úti á hinum stóra markaði. Það á svo sannarlega við um hugmyndina að fyrirtækinu Wasabi Iceland sem Johan Sindri Hansen og Ragnar Atli Tómasson hafa stofnað en þeir útskrifuðust frá Háskóla Íslands árið 2015.
„Hugmyndin kviknaði vorið 2015 þegar við vorum á síðustu önninni í verkfræðinni, ég í iðnaðarverkfræði og Sindri í vélaverkfræði. Við tókum áfangann Nýsköpun og gerð viðskiptaáætlana en þar er búin til viðskiptaáætlun fyrir verkefni sem nemendur velja sér. Við sáum tækifæri í orkuauðlindum landsins og langaði að kanna grundvöll fyrir útflutningi á íslenskum ræktunarafurðum, en slíkt hefur ekki verið gert áður,“ segir Ragnar Atli um upphafið.
Ragnar Atli Tómasson og Johan Sindri Hansen
„Ástæða þess að okkur datt í hug að skoða wasabi-plöntuna til að byrja með var sú að við höfðum þá nýlega komist að því að meira en 95% af öllu wasabi sem borið er fram með sushi inniheldur í raun ekkert wasabi heldur piparrót, sinnep og grænan matarlit.“

Flestir tengja wasabi við japanska réttinn sushi og því vaknar sú spurning hvers vegna það hafi orðið fyrir valinu. „Þegar við ákváðum að skoða möguleika í útflutningi á ræktunarafurðum greindum við fýsileika mismunandi ræktunarafurða. Eftir mikla skoðun á ótrúlegustu plöntum kom í ljós að wasabiplantan hefur marga eiginleika sem falla vel að hugmyndum um ræktun á Íslandi og útflutning. Plantan þrífst ágætlega í íslensku loftslagi og hefur hátt kílóverð,“ segir Sindri og bætir við: „Ástæða þess að okkur datt í hug að skoða wasabi-plöntuna til að byrja með var sú að við höfðum þá nýlega komist að því að meira en 95% af öllu wasabi sem borið er fram með sushi inniheldur í raun ekkert wasabi heldur piparrót, sinnep og grænan matarlit.“
Þeir félagar tóku þátt í viðskiptahraðlinum Startup Reykjavík með verkefnið strax að lokinni útskrift. „Eftir að Startup Reykjavík lauk héldum við áfram að fínpússa viðskiptaáætlunina og tókum svo inn fjárfesta í febrúar 2016 til þess að fara í fulla framleiðslu. Í júní síðastliðnum hófum við svo ræktun í hátæknigróðurhúsum,“ segir Ragnar Atli en þau er að finna á Egilsstöðum. Aðspurðir segja þeir námið í verkfræðinni hafa nýst vel í verkefninu. „Í náminu öðluðumst við reynslu í að takast á við og leysa margs konar verkefni og hefur sú þjálfun og skipulag nýst okkur vel við úrlausn fjölmargra og ólíkra vandamála,“ segir Sindri.
Þeir félagar líta bjartsýnir til framtíðar. „Við væntum þess að fyrirtækið vaxi frekar á næstu árum. Við stefnum á að auka framleiðslugetu gróðurhúsanna strax á næsta ári og að hefja útflutning. Það verður spennandi að flytja út grænmeti frá Íslandi í fyrsta skipti,“ segja þeir félagar.