Sunna Kristín Símonardóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
„Eftir að hafa lesið mér til um hvað er að gerast í fræðunum í dag kom upp hugmyndin að skoða hvernig mæður upplifa ráðandi hugmyndir um móðurhlutverkið eins og það birtist á Íslandi,“ segir Sunna Kristín Símonardóttir, doktorsnemi í félagsfræði, um doktorsrannsókn sína.
Sunna hefur lengi haft áhuga á sambandi mæðra við börn sín og skrifaði meðal annars um það í lokaverkefni sínu til BA-gráðu. Í framhaldinu hóf hún meistaranám í kynjafræði við Háskólann í Leeds á Englandi þar sem lokaverkefnið fjallaði um fóstureyðingar. „Þetta hefur alltaf vakið áhuga hjá mér, hvernig það að vera móðir setur þig ósjálfrátt í aðra stöðu en þú varst í áður.“
Rannsóknir á viðfangsefninu eru nokkuð bundnar við engilasaxnesku löndin svo Sunna ferðast mikið til þess að geta átt í samræðum við aðra fræðimenn. Íslenskar rannsóknir eru af skornum skammti. „Það er eins og það sé ekki lengur í tísku að spá í móðurhlutverkið í Skandinavíu. Af því að við erum svo miklir femínistar þá er eins og að okkur finnist við vera búin með þetta,“ segir Sunna en telur jafnframt að það eigi eftir að breytast.
„Konum á Íslandi er svolítið sagt að allar konur geti verið með börn á brjósti og þegar þær upplifa að þær geta það ekki vita þær ekkert hvar þær eru staddar.“

Sunna hefur í rannsókn sinni skoðað brjóstagjöf sérstaklega. Niðurstöður benda til að konur sem lenda í erfiðleikum með brjóstagjöf geti átt á hættu að vera dæmdar fyrir það að líkami þeirra bregðist. Það geti fylgt því skömm að geta ekki gefið brjóst og konur sem lenda í því upplifa sig einar með það. Viðmælendur Sunnu hafa nefnt að þær þori ekki að gefa barninu pela í mömmuhópum eða á kaffihúsi vegna þess að það gæti verið litið á þær sem slæmar mæður. Rannsóknir benda á hinn bóginn til þess að allt að 15% mæðra lenda í vandræðum með brjóstagjöf svo vandamálið er algengara en fólk áttar sig á.
„Konum á Íslandi er svolítið sagt að allar konur geti verið með börn á brjósti og þegar þær upplifa að þær geta það ekki vita þær ekkert hvar þær eru staddar,“ segir Sunna og telur að endurskoða þurfi umræðu um brjóstagjöf á Íslandi.
Með rannsókn sinni vonast Sunna til þess að hvetja til umræðu um upplifun kvenna á móðurhlutverkinu. Hingað til hafa greinar eftir Sunnu aðallega verið birtar í alþjóðlegum fræðiritum sem bendir til þess að Ísland sé að komast á kortið í umræðunni. Sunna telur það áskorun að færa þekkinguna út í samfélagið og nærumhverfi sitt. „Það sem ég myndi vilja gera þegar ég hef lokið rannsókninni er að koma niðurstöðunum á einhvern hátt inn í samfélagsumræðuna,“ segir hún.
Sunna varði doktorsritgerð sína haustið 2017.
Leiðbeinandi: Ingólfur V. Gíslason, dósent við Félags- og mannvísindadeild.