Skip to main content

Börnin og smátækin

Steingerður Ólafsdóttir, lektor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild

Það virðist færast í vöxt að örfárra mánaða gömul börn hafi afþreyingu af því að horfa á misflókin smáforrit eða leiki á skjám á farsímum og öðrum smátækjum. Mikið framboð er enda af slíkum leikjum og margir hverjir eru ætlaðir mjög ungum börnum. Þá er þekkt að ung börn noti samfélagsmiðla og gagnaveitur á borð við Youtube.

Ekki er til nein rannsókn sem kortleggur það hvernig notkun barna á smátækjum er háttað hér á landi né hver viðhorf foreldra eru gagnvart slíkri notkun. Nú er verið að ráða bót á þessu með nýrri rannsókn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

„Á aðeins örfáum árum hefur tækniþróunin orðið sú að spjaldtölvur og snjallsímar eru á færi yngstu barnanna og línuleg dagskrá sjónvarpsstöðva heyrir fortíðinni til meðal yngra fólks,“ segir Steingerður Ólafsdóttir lektor sem stýrir rannsókninni. Hún hefur það að markmiði að gefa mynd af skjá- og miðlanotkun barna frá nokkurra mánaða til átta ára aldurs.

„Mikilvægt er að rannsóknir á þessu sviði fylgi tækni- og samfélagsþróun,“ segir Steingerður og bætir því við að tilgangurinn með rannsókninni sé sá að átta sig á því efni sem verður á vegi barnanna í gegnum ýmiss konar leiki, fjölmiðla og samfélagsmiðla í hversdegi þeirra og viðhorfum foreldranna til notkunarinnar.

„Kveikjan að þessu verkefni var doktorsverkefnið mitt sem ég vann við Gautaborgarháskóla um sjónvarps- og matarvenjur ungra barna,“ segir Steingerður.

„Í Svíþjóð liggja fyrir upplýsingar um miðlanotkun yngstu barnanna sem ég vitnaði til í doktorsritgerðinni sem mikilvægra bakgrunnsupplýsinga. Sænska fjölmiðlanefndin sendir reglulega út spurningalista til að kortleggja miðlanotkun barna á aldrinum frá fyrsta ári til 18 ára, t.d. hvaða sjónvarpsþættir eru vinsælastir meðal barna eða hvaða tæki þau nota til að komast á netið.“
 

„Söfnun þessara upplýsinga er einnig samfélagslega mikilvæg þar sem miðlanotkun barna er mikið rædd meðal foreldra og sitt sýnist hverjum. Því er mikilvægt að geta gefið yfirlit yfir hvernig málum er háttað.“

Steingerður Ólafsdóttir

Steingerður segir að sambærilegar upplýsingar liggi ekki fyrir um yngstu börnin á Íslandi en þær séu nauðsynlegar til að gera megi frekari rannsóknir á sambandi miðlanotkunar barna við aðra þætti.

„Söfnun þessara upplýsinga er einnig samfélagslega mikilvæg þar sem miðlanotkun barna er mikið rædd meðal foreldra og sitt sýnist hverjum. Því er mikilvægt að geta gefið yfirlit yfir hvernig málum er háttað.“

Steingerður segist munu leggja sambærilega spurningalista og gert var í sænsku könnununum fyrir foreldra um 2000 barna frá nokkurra mánaða gömlum til átta ára um allt land. „Niðurstöður liggja ekki fyrir því rannsóknin er enn á frumstigi. Væntingarnar eru að geta gefið skýra mynd af því hvernig miðlanotkun yngstu barnanna er háttað og viðhorfum foreldranna til notkunarinnar.“