Eva Guðrún Sveinsdóttir, aðjunkt við Tannlæknadeild
„Forvarnir gegn tannátu og öðrum mmunnsjúkdómum gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki, einkum hjá börnum, og mér þótti því brýnt að kanna hvernig þeim væri háttað meðal íslenskra tannlækna,“ segir Eva Guðrún Sveinsdóttir, aðjunkt í barnatannlækningum, um rannsókn sem hún vann fyrir nokkrum misserum. Niðurstöður hennar kynnti Eva á ráðstefnu í líf- og heilbrigðisvísindum við Háskóla Íslands í upphafi árs 2017.
„Rannsóknin hafði það markmið að kanna hvort íslenskir tannlæknar teldu efnahagskreppuna, sem hófst árið 2008, hafa haft áhrif á eftirspurn eftir tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga en einnig að afla upplýsinga um fyrirbyggjandi meðferðir hjá börnum og unglingum,“ útskýrir Eva.
Kveikjan að rannsókninni var samnorræn rannsókn sem gerð var á níunda áratug síðustu aldar þar sem kannað var hvernig tannlæknaþjónustu fyrir börn og unglinga væri háttað á Norðurlöndunum. „Árið 2012 var ákveðið að endurtaka þá rannsókn og ég var beðin um að sjá um íslenska hluta rannsóknarinnar sem varð hluti af sérfræðinámi mínu í barnatannlækningum,“ segir Eva.
„Verði skerðing á efnahag foreldra/forráðamanna og/eða samdráttur í endurgreiðslu til tannlækninga getur það leitt til minni eftirspurnar eftir forvörnum og tannátumeðferðum og þar með verri tannheilsu. Með nýju endurgreiðslukerfi Sjúkratrygginga Íslands, þar sem börn 0-18 ára greiða einungis árlegt komugjald að upphæð 2.500, er von um að tannheilsa íslenskra barna og unglinga muni batna í heild sinni á komandi árum.“

Niðurstöður Evu benda til þess að spurn eftir tannlæknaþjónustu barna og unglinga hafi dregist saman í kjölfar efnahagskreppunnar. „Einnig taldi meirihluti tannlækna minnkandi endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands til tannlækninga barna og unglinga frá lokum síðustu aldar til ársins 2012 hafa haft skaðleg áhrif á tannheilsu sumra eða flestra barna,“ segir Eva enn fremur.
Niðurstöður Evu bera með sér þau alvarlegu tíðindi að efnahagur foreldra/forráðamanna geti haft sitt að segja um tannheilsu barna og unglinga. „Verði skerðing á efnahag foreldra/forráðamanna og/eða samdráttur í endurgreiðslu til tannlækninga getur það leitt til minni eftirspurnar eftir forvörnum og tannátumeðferðum og þar með verri tannheilsu. Með nýju endurgreiðslukerfi Sjúkratrygginga Íslands, þar sem börn 0-18 ára greiða einungis árlegt komugjald að upphæð 2.500, er von um að tannheilsa íslenskra barna og unglinga muni batna í heild sinni á komandi árum,“ segir Eva, vonbetri um framtíðina.
Leiðbeinendur: Sigurður Rúnar Sæmundsson, dósent við Tannlæknadeild, og Nina J. Wang, prófessor við Barnatannlæknadeild Óslóarháskóla.