Skip to main content

Bætt umferðaröryggi í þágu hjólreiðafólks

Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild

Með vaxandi notkun reiðhjóla til samgangna, heilsuræktar, skemmtunar og íþrótta er mikilvægt að rannsaka slys hjólreiðafólks til þess að stuðla að bættu umferðaröryggi allra vegfarenda. Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði, tekst á við þetta í rannsóknum sínum og skoðar sérstaklega meiðsl hjólreiðafólks eftir slys.

„Rannsóknin byggist á gögnum úr gagnasafni sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa og Landspítalinn hafa þróað. Þar eru upplýsingar um slys frá bráðamóttöku, sem þýðir að þar eru gögn sem birtast ekki í lögregluskýrslum, og það er dýrmæt viðbót,“ segir hann.

Fyrsta greining á gögnunum sýnir að mikilvægt er að bæta sjálfa gagnaöflunina um hjólreiðaslys. „Slíkt er nauðsynlegt til þess að mögulegt verði að skoða betur hvaða áhrif tilteknar umferðaröryggisaðgerðir hafa á meiðsl hjólreiðafólks. Verið er að setja fram tölfræðilíkön sem meta áhrifaþætti og tengsl þeirra við meiðslin. Rannsókninni er hins vegar ekki lokið og verður haldið áfram á næsta ári,“ útskýrir Guðmundur Freyr.
 

Guðmundur Freyr Úlfarsson

„Rannsókn sem þessi veitir leiðsögn um hvernig best sé að afla upplýsinga um hjólreiðaslys og getur vonandi einnig nýst til að bæta umferðaröryggi hjólreiðafólks.“

Guðmundur Freyr Úlfarsson

„Rannsókn sem þessi veitir leiðsögn um hvernig best sé að afla upplýsinga um hjólreiðaslys og getur vonandi einnig nýst til að bæta umferðaröryggi hjólreiðafólks. Í rannsókninni fæst einnig reynsla af því að nota gögn sem eru skráð misnákvæmt eftir því hvers eðlis slysið er. Slíkt hefur sérstakar hliðarverkanir sem margar greiningaraðferðir ráða ekki við því þær gera ráð fyrir að gögnin séu skráð með sama hætti undir öllum kringumstæðum.“

Rannsóknin er unnin með styrk frá Rannsóknasjóði Háskóla Íslands og taka framhaldsnemendur í umhverfis- og byggingarverkfræði þátt í verkefninu. „Mitt aðalrannsóknasvið er umferðaröryggi í víðum skilningi, þ.e. öryggi allra vegfarenda. Það er mikil hvatning að sjá að rannsóknir á umferðaröryggi geta leitt til þess að slysum og dauðsföllum fækkar í framtíðinni. Þetta er því spennandi rannsóknarsvið sem getur haft jákvæð áhrif á okkur öll,“ segir Guðmundur Freyr bjartsýnn að lokum.