Alda Björk Valdimarsdóttir, doktorsnemi við Íslensku- og menningardeild
„Ég er að greina ástarsögur, skvísusögur, hrollvekjur, skáldaðar ævisögur, sjálfshjálparbækur og ferðasögur sem eiga það sameiginlegt að snúa að sagnaheimi breska rithöfundarins Jane Austen,“ segir doktorsneminn Alda Björk Valdimarsdóttir. Í doktorsverkefninu leitar hún svara við því hvers vegna Austen, sem fæddist í desember árið 1775 og ritaði öll sín verk við upphaf nítjándu aldar, hefur slegið í gegn á vorum dögum. Alda Björk vill líka kanna hvaða áhrif sérstakur iðnaður, kenndur við Austen, hafi á ímynd hennar sem hefðarhöfundar. „Sem dæmi um umfang Austen-iðnaðarins má nefna að tvö til þrjú hundruð framhaldssögur hafa verið skrifaðar um Hroka og hleypidóma eina. Það er táknræn niðurstaða þessa alls að Jane Austen er núna á tíu punda seðlinum breska.“
Í rannsókninni skoðar Alda Björk hvernig Austen brúar bilið milli hefðar og afþreyingar. „Jane Austen er einn af mínum eftirlætishöfundum. Mér þótti forvitnilegt hvernig sagnaheimur hennar, nafn hennar og ímynd hafa sprungið út í margar ólíkar áttir í nútímanum. Fólk af öllum stigum samfélagsins hefur og getur speglað sig í verkum hennar,“ segir Alda Björk.
Alda Björk Valdimarsdóttir
„Ég er að greina ástarsögur, skvísusögur, hrollvekjur, skáldaðar ævisögur, sjálfshjálparbækur og ferðasögur sem eiga það sameiginlegt að snúa að sagnaheimi breska rithöfundarins Jane Austen.“

Alda Björk segir að sagnaheimur Austen hafi mótandi áhrif á vinsælar ástarsögur og skvísusögur nútímans. Einnig hefur verið ritaður fjöldi sjálfshjálparbóka þar sem Austen leiðbeinir m.a. konum í ástamálum þeirra. „Jane Austen er í ólíkum hlutverkum andspænis aðdáendum sínum og lesendum nútímans; hún er leiðbeinandi fyrirmynd, kennslukona, lífsstílsgúrú og dýrlingur.“
Í rannsókninni skoðar Alda Björk einnig stöðu nútímakonunnar í neyslusamfélaginu og fjallar um það hvernig afþreyingarsögur endurspegla ýmis vandamál sem konur glíma við, t.d. varðandi útlit og frama. „Aðdáendur Austen sækja í sagnaheim hennar meðal annars vegna þess að þar má finna gildi, viðhorf og siðferðilegan skilning sem eru að leysast upp í nútímanum í áherslunni á líkama, útlit, yfirborð og neyslu.“
Alda Björk segir að lesendur telji sig öðlast aukinn sjálfsskilning með því að lesa bækur Austen og geri sér betur grein fyrir hvaða ákvarðanir þeir eigi að taka í lífinu sjálfu, ekki síst í ástamálum. „Aðdáendur skáldkonunnar telja sig jafnvel verða að betri manneskjum með lestri á Austen, hún er þeim kærkominn vinur, ekki síst þegar erfiðleikar steðja að.“
Leiðbeinandi: Dagný Kristjánsdóttir, prófessor við Íslensku- og menningardeild.
Alda lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands í október 2014.