Sveinbjörn Óskarsson, MS frá Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Rafræn skilríki komust í sviðsljósið á haustmánuðum 2014, ekki síst í tengslum við áform stjórnvalda um leiðréttingu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána. Hægt var að nýta rafræn skilríki á símtækjum til þess að staðfesta umsókn um leiðréttingu en rafræn skilríki voru einmitt viðfangsefni Sveinbjörns Óskarssonar í lokaverkefni hans til meistaraprófs í tölvunarfræði vorið 2014.
„Lokaverkefnið snerist um að auka öryggi snjalltækja með því að gefa út á þau rafræn skilríki, vottuð með þeim auðkenningarleiðum sem í boði eru á netinu. Skilríkin á tækjunum má nota til að auðkenna notendur með miðlægum skilríkjum sem hægt er að beita hvar og hvenær sem er með hjálp smáforrita. Einnig er hægt að nota þau til dulritunar við skráarskipti milli notenda,“ útskýrir Sveinbjörn en verkefni hans var ótengt áformum stjórnvalda um leiðréttingu húsnæðislána.
Sveinbjörn Óskarsson
„Lokaverkefnið snerist um að auka öryggi snjalltækja með því að gefa út á þau rafræn skilríki, vottuð með þeim auðkenningarleiðum sem í boði eru á netinu. Skilríkin á tækjunum má nota til að auðkenna notendur með miðlægum skilríkjum sem hægt er að beita hvar og hvenær sem er með hjálp smáforrita.“

„Ég hef unnið með rafræn skilríki í mörg ár og hafði lengi langað að útfæra miðlæga skilríkjalausn. Þegar Auðkenni kom fram með rafræn skilríki á SIM-kortum glæddi það áhuga minn og varð til þess að ég ákvað að vinna lokaverkefni mitt á þessu sviði,“ segir Sveinbjörn og bætir við að með tilkomu snjalltækjanna hafi verið hægt að útfæra notkun rafrænna skilríkja með þægilegum hætti.
Sveinbjörn segir að við prófanir hafi verið hægt að sækja um og beita rafrænum skilríkjum til auðkenningar, undirritunar og dulritunar. „Þetta var gert með hjálp umsóknarsíðu, þrískiptu vefþjónustulagi, öflugu bakendalagi, útgáfustöð rafrænna skilríkja og Android-biðlara.“
Sveinbjörn vonast til að verkefnið verði til þess að auka áhuga á rafrænum undirritunum og almennri notkun á rafrænum skilríkjum. „Einnig er óskandi að verkefnið fái forritara til að huga frekar að auðkenningu snjalltækja við vefþjónustur.“
Leiðbeinandi: Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.