Skip to main content

Áhrif áfalla á heilsu

Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild

„Rannsóknin snýst fyrst og fremst um að skilja betur þátt erfða í því af hverju sumir einstaklingar missa heilsu í kjölfar áfalla á meðan aðrir þolendur áfalla gera það ekki. Þær spurningar sem við höfum lagt fram, og þær aðstæður sem við höfum til að svara þeim, eru einstakar á heimsvísu. Við vonumst til að hægt verði að þróa niðurstöðurnar áfram í þekkingu sem nýtist heilbrigðisstarfsfólki við að finna og hjálpa einstaklingum sem eru í aukinni áhættu á heilsubresti í kjölfar áfalla.“

Þetta segir Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í faraldsfræði við Læknadeild, en hún er með afkastameiri vísindamönnum Háskóla Íslands. Nýlega vakti rannsókn Unnar Önnu og samstarfsfólks við Háskólann og fjölda virtra stofnana gríðarlega athygli en hún sýndi að karlar og konur sem nýlega hafa greinst með krabbamein væru í verulega aukinni hættu á sjálfsvígi og skyndilegu andláti vegna hjarta- og æðasjúkdóma. Nýja rannsóknin er nokkurs konar framhald af þeirri rannsókn.

„Teymið mitt hefur um langa hríð unnið að rannsóknum á áhrifum áfalla á þróun heilsufars, þ.e.a.s. uppkomu ýmissa sálrænna einkenna og geðraskana, en einnig ýmissa líkamlegra sjúkdóma. Það sem vekur forvitni okkar er að það virðist sem sumir einstaklingar, sem verða fyrir slíkum skakkaföllum, séu mjög berskjaldaðir fyrir heilsubresti í kjölfar áfalla á meðan aðrir virðast nær ónæmir fyrir slíkum heilsubresti eftir sambærileg áföll.“

Unnur Anna Valdimarsdóttir

„Það sem vekur forvitni okkar er að það virðist sem sumir einstaklingar, sem verða fyrir slíkum skakkaföllum, séu mjög berskjaldaðir fyrir heilsubresti í kjölfar áfalla á meðan aðrir virðast nær ónæmir fyrir slíkum heilsubresti eftir sambærileg áföll.“

Unnur Anna Valdimarsdóttir

Unnur Anna segir að þetta sé fyrsta rannsóknin á heimsvísu sem hafi forsendur til að svara þeim mikilvægu spurningum sem rannsóknin fæst við. Með ítarlegar erfðaupplýsingar og heilsufarsgagnagrunna yfir heila þjóð geta Íslendingar, sem áður, verið í fararbroddi í þekkingarsköpun á þessu sviði.

„Þannig nýtum við í rannsóknateyminu þann einstaka efnivið sem fólginn er í erfðafræðigrunni Íslenskrar erfðagreiningar, Íslendingabók og í íslenskum heilbrigðisgagnagrunnum. Með þeim gögnum getum við skoðað erfðabreytileika í sjúkdóma- og dánartíðni Íslendinga í kjölfar algengra áfalla. Við skoðum gögn vegna ástvinamissis og upplýsingar sem tengjast einstaklingum sem greinast með alvarlega sjúkdóma á borð við krabbamein. Einnig munum við nota stórar framsýnar rannsóknir til að greina erfðabreytileika sem tengjast einkennum áfallastreituröskunar eftir áföll á borð við kynferðisofbeldi og náttúruhamfarir.“

Unnur Anna segist vonast til að rannsóknin skili betri skilningi á líffræðilegum breytileika í heilsufarsviðbrögðum við alvarlegum áföllum.