Skip to main content

Samspil háskóla og atvinnulífs: Uppspretta þekkingar og drifkraftur nýsköpunar

Samspil háskóla og atvinnulífs: Uppspretta þekkingar og drifkraftur nýsköpunar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. maí 2026 9:00 til 11:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á undanförnum árum hefur fjöldi leiðandi fræðimanna víða um heiminn beint sjónum að einni lykilspurningu: Hvernig verður þekking að raunverulegum verðmætum?

Rannsóknir sýna að tengsl háskóla og atvinnulífs eru ekki einfaldur flutningur hugmynda úr háskólum út í samfélagið, heldur flókið samspil þar sem rannsóknir, samstarf og gagnkvæm þekking móta sjálfa nýsköpunina. Samvinna er kjarninn í þekkingarflæði milli ólíkra geira, hvort sem um er að ræða óformleg tengsl eða skipulagða samvinnu í flóknum og yfirgripsmiklum rannsóknaverkefnum.

Háskóli Íslands beinir sjónum að þessum veruleika á alþjóðlegum viðburði í Hátíðasal Háskóla Íslands, þriðjudaginn 26. maí frá kl. 9:00 til 11:30. Þar munu þrír af fremstu fræðimönnum Evrópu á þessu sviði flytja erindi og ræða þessa lykilundirstöðu samfélagslegrar þróunar og nýsköpunar. Á fundinum verður rætt sérstaklega hvernig háskólar og atvinnulíf vinna saman til gagnkvæms ávinnings — og hvernig stefnumótun stjórnvalda getur stutt við slíkt samstarf. Sérstök áhersla er lögð á þverfræðilegt samstarf og þær áskoranir sem felast í því að hagnýta og sameina þekkingu ólíkra aðila.

Vísindafólkið sem talar í Aðalbyggingu HÍ er:

Markus Perkmann, prófessor við Imperial College Business School, sem er á meðal áhrifamestu rannsakenda á sviði tengsla háskóla og atvinnulífs. Rannsóknir hans sýna að samstarfið snýst ekki fyrst og fremst um að breyta rannsóknum í markaðsvörur, heldur að styrkja rannsóknirnar sjálfar. Fræðimenn taka þátt í samstarfi, ráðgjöf og sameiginlegum verkefnum, og sú þátttaka er ekki frávik frá fræðastarfinu, heldur hluti af kjarna þess.

Maureen McKelvey, prófessor við Háskólann í Gautaborg, sem hefur rannsakað hvernig nýsköpun verður til í vistkerfum þar sem háskólar, fyrirtæki og stjórnvöld starfa saman. Hún sýnir að verðmætasköpun verður til þar sem þessi tengsl eru ekki bara virk, heldur gagnkvæm og byggð á langtímasamstarfi.

Magnus Guldbrandsen, prófessor við Oslóarháskóla, sem hefur skoðað hvernig þessi tengsl þróast yfir tíma. Rannsóknir hans sýna að þau einkennast bæði af samvinnu og innbyggðri togstreitu, milli hagnýtingar annars vegar og sjálfstæðis rannsóknanna hins vegar. Sú spenna er ekki veikleiki, heldur forsenda árangurs.

Fundarstjóri verður Rögnvaldur Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika við HÍ og prófessor í iðnaðarverkfræði við Háskólann.

Háskóli Íslands hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á tengsl við samfélag og byggt starf sitt á öflugum rannsóknum og nýsköpun. Áhrif Háskólans byggja ekki á einföldum flutningi þekkingar út í atvinnulífið, heldur á virkum tengslum þar sem rannsóknir, samstarf og gagnkvæm nýting þekkingar verða kveikjan að nýsköpun sem hefur jákvæð áhrif til lengri tíma.

Aðgangur er ókeypis.