Heilsa og loftslagsmál

Teams
Þriðji viðburður í viðburðaröð Háskóla Íslands og Sjálfbærnistofnunar skólans, „Loftslagsmál og rannsóknir“, fer fram á TEAMS miðvikudaginn 10. júní nk. frá kl. 12.00–13.00.
Að þessu sinni munum við fjalla um heilsu og loftslagsmál. Tveir sérfræðingar munu halda erindi: Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ, og Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir bráðalækninga á Landspítalanum.
Fundarstjóri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands
Hlekkur á fjarfund:
Microsoft Teams meeting
Join: https://teams.microsoft.com/meet/347616223340404...
Meeting ID: 347 616 223 340 404
Passcode: d8SD798F
Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur en hvetjum við ykkur til að taka tímann frá og fræðast með okkur um þetta mikilvæga málefni.
Um viðburðaröðina
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans og krefjast markvissra rannsókna, þverfaglegrar þekkingar og sterkari tengsla milli vísinda og samfélags. Ný viðburðaröð við Háskóla Íslands, Loftslagsmál og rannsóknir, setur fókus á stöðu loftslagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og þá brýnu þörf á að efla samhæfingu, miðlun og nýtingu rannsókna.
Markmið viðburðaraðarinnar er að skapa vettvang fyrir upplýsta umræðu um loftslagsrannsóknir og hlutverk þeirra í stefnumótun og ákvarðanatöku. Sérstök áhersla er lögð á samtal milli vísindafólks, sem og á milli fræðasamfélags, stjórnsýslu, atvinnulífs og almennings.
Þriðji viðburður í viðburðaröð Háskóla Íslands og Sjálfbærnistofnunar skólans, „Loftslagsmál og rannsóknir“, fer fram á TEAMS miðvikudaginn 10. júní nk. frá kl. 12.00–13.00.
