Katrín Sif Kristbjörnsdóttir, MS frá Matvæla- og næringarfræðideild
„Sterkar líkur eru á að þriðjungur sjúklinga á öldrunardeildum Landspítalans sé vannærður“, segir Katrín Sif Kristbjörnsdóttir sem er fyrsti neminn til þess að útskrifast með MS-próf í klínískri næringarfræði hér á landi. Í rannsóknarverkefni sínu skoðaði hún næringarástand sjúklinga á öldrunardeildum Landspítalans á Landakoti.
Markmið rannsóknarinnar var að meta hættu á vannæringu, fæðusóun, orku- og próteininntöku og við- horf sjúklinga til fæðisins á sjúkrahúsinu. „Gott næringarástand skiptir sköpum fyrir lífsgæði, velferð og heilsu sjúklings. Vannæring getur nefnilega haft ýmsar neikvæðar afleiðingar, s.s. aukna hættu á sýkingum, vöðvaslappleika, lengri sjúkrahúsvistun og aukna dánartíðni,“ segir hún og bætir við: „Vannæring hefur þó ekki eingöngu neikvæðar afleiðingar fyrir sjúklinginn sjálfan heldur einnig fyrir heilbrigðiskerfið í heild sinni vegna aukins kostnaðar en kostnaðurinn liggur meðal annars í lengri sjúkrahúsvistun og aukinni tíðni endurinnlagna meðal vannærðra.“
Katrín Sif Kristbjörnsdóttir
„Sterkar líkur eru á að þriðjungur sjúklinga á öldrunardeildum Landspítalans sé vannærður.“

Orkuinntaka sjúklinga var að meðaltali um 1300 kkal en það er vel undir áætlaðri heildarorkuþörf þeirra sem var um 1600-1900 kkal eftir því hvort um konur eða karla er að ræða. Enginn sjúklinganna náði ráðleggingum um próteininntöku. „Rannsóknin er mikilvægur þáttur í að auka þekkingu okkar á næringarástandi aldraðra sjúklinga hér á landi. Niðurstöður gefa til kynna að ástandið er líklega ekki nægilega gott og því er mikilvægt að horfast í augu við vandann. Sem dæmi væri hægt að láta orku- og próteinbætt fæði vera staðlað fæði á öldrunardeildum en rannsóknir hafa sýnt að það getur aukið orku- og próteininntöku og um leið minnkað hættu á vannæringu, segir Katrín en niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar á næsta ári.
Leiðbeinendur: Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild, og Óla Kallý Magnúsdóttir, sérfræðingur á næringarstofu Landspítala