Heilsan okkar: Árangur í krabbameinsmeðferð – hvað getum við bætt?

Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur
Heilsan okkar: Árangur í krabbameinsmeðferð – hvað getum við bætt?
Fundur marsmánaðar í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 27. mars kl. 11:30-13:00
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Auglýstur síðar
Hlekkur á beint streymi: https://vimeo.com/event/5802361
Dagskrá
-
Sigríður Gunnarsdóttir prófessor í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands, forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun á Landspítala og forstöðumaður Rannsóknaseturs-Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélagi Íslands – Lífsgæði og heilbrigðisþarfir eftir greiningu krabbameins, ný þekking til að þróa einstaklinshæfða þjónustu á Íslandi
-
Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir, yfirlæknir og dósent við Læknadeild HÍ – Nýjar meðferðir og mikilvægi hreyfingar í krabbameinsmeðferð
-
Helga Tryggvadóttir, krabbameinslæknir - Meðferðarferlar og eftirfylgd brjóstakrabbameins á Brjóstamiðstöð á LandspítalaNanna Friðriksdóttir sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með krabbamein á Landspítala og aðjúnkt við Háskóla Íslands – Krabbameinsgáttin stafræn heilbrigðisþjónusta sem styður við einstaklinghæfða meðferð
-
Vigdís Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri krabbameinsþjónustu á Landspítala – Stofnun Krabbameinsmiðstöðvar og vottun frá Evrópu
- Pallborðsumræður
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Fundur marsmánaðar í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 27. mars kl. 11:30-13:00
