Skip to main content

Móttaka nýnema á Menntavísindasviði

Móttaka nýnema á Menntavísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. ágúst 2025 8:20 til 11:40
Hvar 

Saga 2.hæð norðurálma

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Menntavísindasvið HÍ býður öllum nýnemum í grunnnámi sviðsins til móttöku og fræðslu mánudaginn 18. ágúst.

Dagskráin verður tvískipt. Nýnemar grunnnáms í Deild faggreinakennslu og Deild kennslu- og menntunarfræða mæta kl. 8.20-10.

Nýnemar grunnnáms í Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og Deild menntunar og margbreytileika mæta kl. 10.10. 

Báðar móttökur nýnema grunnnáms fara fram í nýju húsnæði Menntavísindasviðs á 2. hæð í Sögu, Hagatorgi 1. (Inngangur gegnt Þjóðarbókhlöðu).

DAGSKRÁ - Deild faggreinakennslu og Deild kennslu og menntunarfræða

08.20 - 9.00

  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS 
  • Gunnar Ásgrímsson, forseti sviðsráðs MVS og fulltrúar nemendafélaga MVS, Tuma, Kennó og Vatnið 
  • Kynning á nemendaþjónustu MVS 

09.00 – 09.30
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði -  Ávarp og fjörefli

09.30 – 10.00
Kynning á námi eftir deildum og námsbrautum

12.00 - Kennsla hefst skv. stundaskrá

DAGSKRÁ - Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og Deild menntunar og margbreytileika

10.10 - 10.40

  • Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS 
  • Gunnar Ásgrímsson, forseti sviðsráðs MVS og fulltrúar nemendafélaga MVS, Tuma, Kennó og Vatnið 
  • Kynning á nemendaþjónustu MVS 

10.40 – 11.10
Vanda Sigurgeirsdóttir, ávarp og fjörefli

11.10 – 11.40
Kynning á námi eftir deildum og námsbrautum

12.00 - Kennsla hefst skv. stundaskrá

Dagskrá og gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema má finna á nýnemasíðu sviðsins.

Við hvetjum nýnema í grunnnámi eindregið til að mæta á móttökuna.

Móttaka nýnema í grunnnámi á Menntavísindasviði fer fram mánudaginn 18. ágúst frá  kl.08:20 á 2.hæð í Sögu.

Móttaka nýnema á Menntavísindasviði