Jónína Vala Kristinsdóttir, dósent við Menntavísindasvið
„Niðurstöðurnar benda til þess að með stuðningi við að rannsaka eigin kennslu eflist kennarar í að þróa stærðfræðikennslu sína og skapa námssamfélag þar sem nemendur læra stærðfræði með rannsakandi hætti,“ segir Jónína Vala Kristinsdóttir, dósent í stærðfræðimenntun, um doktorsrannsókn sem hún lauk á haustmánuðum 2016.
Jónína segir aðdraganda rannsóknarinnar þann að hún hafi í störfum sínum við Kennaradeild Háskólans komist að því að margir kennarar hafi átt í erfiðleikum með að kenna stærðfræði í samræmi við þær kröfur sem finna má í aðalnámskrá grunnskóla. „Ég vildi jafnframt þróa starf mitt sem lektor í stærðfræðimenntun, finna leiðir til að styðja kennara við að mæta þörfum ólíkra nemenda við stærðfræðinám og öðlast skilning á hvernig nýta megi þær við að bæta skólastarf,“ segir hún.
Jónína lagði áherslu á það í rannsókninni að afla þekkingar á starfsþróun kennara sem endurskoða stærðfræðikennslu sína. „Ég vann í þrjú ár með sjö kennurum á miðstigi grunnskóla. Markmiðið var að kanna hvernig þeir og kennari í stærðfræðimenntun unnu saman að því að rannsaka eigið starf og með hvaða hætti samvinnan hafði áhrif á starf þeirra,“ segir hún.
„Þátttakendur skerptu skilning sinn á hvernig tryggja megi aðgengi ólíkra nemenda að stærðfræði með því að ræða vandamál sem upp komu í kennslustundum þeirra. Í kjölfarið þróuðu kennarar kennsluhætti sína, bæði þeir sem störfuðu í grunnskóla og að menntun stærðfræðikennara.“

Til varð námssamfélag kennara í grunnskóla og kennaramenntun þar sem svokallaðri samvinnurýni var beitt við að skoða ólíkan skilning á stærðfræðinámi og -kennslu. „Þátttakendur skerptu skilning sinn á hvernig tryggja megi aðgengi ólíkra nemenda að stærðfræði með því að ræða vandamál sem upp komu í kennslustundum þeirra. Í kjölfarið þróuðu kennarar kennsluhætti sína, bæði þeir sem störfuðu í grunnskóla og að menntun stærðfræðikennara,“ segir hún.
Jónína segir niðurstöðurnar undirstrika að gefa þurfi kennurum tækifæri til valdeflingar og þátttöku í menntarannsóknum. „Þannig nýtist sérfræðiþekking þeirra á skólastarfi við að þróa árangursríkar leiðir til að bæta það,“ bætir hún við.
Leiðbeinandi: Allyson Macdonald, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild. Meðleiðbeinandi: Barbara Jaworski, prófessor við Loughborough-háskóla á Englandi.