Páll Biering, dósent við Hjúkrunarfræðideild
„Á síðustu árum hefur batastefnan svokallaða og hugmyndin um valdeflingu rutt sér til rúms í geðheilbrigðisþjónustu. Í því felst að notendur þjónustunnar séu virkir og ráðandi þátttakendur í meðferð sinni,“ segir Páll Biering, dósent í geðhjúkrun, sem fer fyrir alþjóðlegum hópi fræðimanna sem þróar nýtt kennsluefni í geðhjúkrun.
Alls koma fulltrúar frá sex erlendum háskólum að verkefninu. „Hugmyndin að verkefninu kviknaði í samtölum mínum við finnska kollega sem ég hef unnið með árum saman, aðallega í samstarfsverkefnum rússneskra og norrænna hjúkrunarfræðikennara. Við bættust kynni okkar af Brendu Hapeel, prófessor í geðhjúkrunarfæði við Canberra-háskóla í Ástralíu, sem er leiðandi fræðimaður á sviði virkrar þátttöku notenda geðheilbrigðisþjónustunnar í meðferð sinni,“ segir Páll um upphaf verkefnisins.
„Í þessu verkefni langar okkur að útvíkka valdeflingu notenda þannig að hún nái líka til menntunar þeirra sem í framtíðinni munu sinna geðheilbrigðisþjónustu. Nýtt kennsluefni og kennsluefni og kennsluaðferðir í geðhjúkrun verður þróað í samvinnu við notendur geðheilbrigðisþjónustunnar. Með þessu vonumst við til að útskrifa hjúkrunarfræðinga sem eru betur í stakk búnir til að mæta þörfum notenda geðheilbrigðisþjónustunnar og að auka áhuga hjúkrunarfræðinga á því að hasla sér völl í geðhjúkrun,“ segir Páll.
Páll vonast jafnframt til að nýta megi reynsluna úr þessu verkefni til að þróa kennsluefni á öðrum sviðum hjúkrunar í samvinnu við notendur heilbrigðisþjónustunnar.
„Í þessu verkefni langar okkur að útvíkka valdeflingu notenda þannig að hún nái líka til menntunar þeirra sem í framtíðinni munu sinna geðheilbrigðisþjónustu. Nýtt kennsluefni og kennsluefni og kennsluaðferðir í geðhjúkrun verður þróað í samvinnu við notendur geðheilbrigðisþjónustunnar.“

Páll hefur ekki aðeins nýtt sérþekkingu sína í geðhjúkrun í þágu íslenskra nemenda og sjúklinga því hann hefur m.a. látið að sér kveða á vegum Rauða krossins. „Ein af ástæðum þess að ég ákvað að læra hjúkrun var útþráin. Ég vissi að slík menntun veitti möguleika á að starfa á alþjóðavettvangi,“ segir Páll sem kynntist starfi Rauða krossins í gegnum rannsóknarverkefni sem hann vann fyrir samtökin og sótti í framhaldinu námskeið fyrir verðandi alþjóðafulltrúa.
Páll fór til Grikklands á vegum Rauða krossins fyrir jólin 2015 til að taka þátt í að sinna þeim mikla fjölda flóttamanna sem flúið hafði þangað frá Mið-Austurlöndum vegna styrjaldarástands. „Störf mín fólust í að veita þeim sálfélagslega aðstoð og upplýsingar og jafnframt að veita samstarfsfólki aðstoð við almenna heilbrigðisþjónustu. Í öðrum sendiförum hef ég veitt starfsfólki og sjálfboðaliðum Rauða krossins sálræna aðstoð, metið geðheilbrigðisþarfir þess og þjálfað það til að veita sálfélagslega fyrstu hjálp,“ segir hann.
Aðspurður segir hann þessa reynslu hafa nýst í kennslu í Háskólanum. „Ég hef víkkað út kennslusvið mitt, t.d. með kennslu í menningarnæmri heilbrigðisþjónustu og hnattrænu geðheilbrigði,“ segir hann að endingu.