Ingibjörg H. Harðardóttir, lektor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild
„Stuðningur eldri borgara í samfélaginu er mikill og margþættur og segja má að þeir myndi öryggisnet kringum fjölskyldur sínar. Algengast er að stuðningurinn sé í formi barnagæslu en einnig margs konar hagnýt aðstoð við fjölskyldu, vini og aðra,“ segir Ingibjörg H. Harðardóttir lektor um niðurstöður rannsóknar hennar á framlagi eldri borgara til samfélagsins.
Rannsóknin hófst árið 2006 og núna, tíu árum síðar, var hluti hennar endurtekinn. Markmiðið var að kanna hvert framlag þessa hóps er og ekki síst það sem ekki verður auðveldlega metið til fjár. Ingibjörg segir kveikjuna að rannsókninni hafa orðið til við kennslu, en hún kennir þroskasálfræði sem spannar allt æviskeiðið og hefur hún leitað til eldra fólks í tengslum við kennsluna. „Í þeim samskiptum komu upp vangaveltur varðandi umfjöllun um eldra fólk í samfélaginu þar sem áhersla væri á að hópurinn væri hjálparþurfi og að það væri þörf á að rannsaka trúverðugleika þeirrar myndar,“ segir Ingibjörg.
„Stuðningur eldri borgara í samfélaginu er mikill og margþættur og segja má að þeir myndi öryggisnet kringum fjölskyldur sínar. Algengast er að stuðningurinn sé í formi barnagæslu en einnig margs konar hagnýt aðstoð við fjölskyldu, vini og aðra.“

Viðfangsefnið valdi hún vegna umræðu um eldra fólk hér á landi. Birtingarmyndir og fjölmiðlaumfjöllun væru mjög einsleit og vitað væri um fjölda fólks sem ekki félli að þessari mynd.
„Það var brýn þörf á að fá haldgóðar upplýsingar um framlag eldri borgara þar sem það er oft ósýnilegt. Vonandi getum við haft áhrif á einsleita umræðu, sýnt fram á styrk eldri borgara og þannig haft áhrif á staðalímyndir og aldursfordóma,“ segir Ingibjörg að lokum.