Thelma Hulda Símonardóttir, BS frá Tannlæknadeild
Það er ekki á allra vitorði að Tannlæknadeild Háskóla Íslands býður almenningi bæði almenna og sérhæfða tannlæknaþjónustu gegn lægra gjaldi en almennt tíðkast. Þessi staðreynd var kveikjan að rannsóknarefni Thelmu Huldu Símonardóttur tannsmiðs en hún kannaði nýverið upplifun og reynslu sjúklinga sem sækja þjónustu til Tannlæknadeildar Háskóla Íslands.
„Mér finnst nauðsynlegt að tannlæknanemar og aðrir nemar við deildina fái kennslu í því að veita bestu mögulegu þjónustu við sjúklinga áður en starfsferill á vinnumarkaði hefst,“ segir Thelma, en hún lagði sérstaka áherslu á að skoða samskipti og upplýsingaflæði milli meðferðaraðila, starfsfólks og sjúklings.
Thelma Hulda Símonardóttir
„Mér finnst nauðsynlegt að tannlæknanemar og aðrir nemar við deildina fái kennslu í því að veita bestu mögulegu þjónustu við sjúklinga áður en starfsferill á vinnumarkaði hefst.“

Flestir þátttakendur rannsóknarinnar, eða rúmlega 70% aðspurðra, voru mjög ánægðir með þjónustu Tannlæknadeildar og konur voru almennt ánægðari en karlar. Niðurstöðurnar sýndu einnig að sjúklingar eru mjög ánægðir með að geta nýtt sér slíka þjónustu fyrir lægra gjald en tíðkast annars staðar.
„Ég tel niðurstöðurnar mjög mikilvægar fyrir stjórnendur og kennara Tannlæknadeildar, m.a. til að endurskoða verklag og bæta þjónustuna og auka þannig gæði hennar. Þannig aukast enn frekar líkur á að sjúklingar upplifi jákvæð samskipti og góða þjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar nýtast bæði starfsfólki og nemendum og eru í þágu sjúklinga,“ segir Thelma.
Leiðbeinandi: Inga B. Árnadóttir, prófessor við Tannlæknadeild.