Skip to main content

Tengsl á milli líkamshreysti og hugrænnar færni

Þráinn Hafsteinsson, MS frá Læknadeild

Ég hef á löngum íþróttaþjálfaraferli fylgst með fjölda barna og unglinga þróast í afreksmenn á íþróttasviðinu á sama tíma og þau standa sig afburðavel í námi. Mig langaði að rannsaka með viðurkenndum aðferðum vísindanna hvort um tengsl gæti verið að ræða milli líkamlegs þjálfunarástands og hugrænnar færni eða greindar,“ segir Þráinn Hafsteinsson sem lauk meistaragráðu í heilbrigðisvísindum á árinu 2014.

Þráinn Hafsteinsson

„Mig langaði að rannsaka með viðurkenndum aðferðum vísindanna hvort um tengsl gæti verið að ræða milli líkamlegs þjálfunarástands og hugrænnar færni eða greindar.“

Þráinn Hafsteinsson

Þráinn er mörgum að góðu kunnur, bæði sem afreksmaður í tugþraut á árum áður og sem afar farsæll frjálsíþróttaþjálfari. Í meistararannsókn sinni kannaði hann tengsl líkamshreysti, hreyfifærni, hugrænnar færni og greindar hjá unglingum í 10. bekk grunnskóla. Jafnframt bar hann þessa þætti saman hjá annars vegar rúmlega 100 manna hópi nemenda úr tveimur grunnskólum í Reykjavík og hins vegar tæplega 40 manna hópi nemenda sem tilheyrðu unglingalandsliðshópum í knattspyrnu, hand- knattleik og frjálsíþróttum. „Líkamshreysti var m.a. mæld með sprett- og þolhlaupum, langstökki og svokölluðu setseilingarprófi sem reynir á hraða, þol, kraft og liðleika og hreyfifærni var könnuð með prófi sem metur fínhreyfingar, boltafærni og jafnvægi. Hugræn færni og greind voru svo metin með tveimur erlendum prófum sem áður hafa verið nýtt við sambærilegar aðstæður,“ útskýrir Þráinn.

Í ljós kom að marktæk tengsl mældust milli árangurs á hugræna færniprófinu og líkams- hreystiprófinu þegar allur hópurinn var skoðaður og leiðrétt hafði verið fyrir kynjamun og mun á afrekshópi og skólahópi. „Tengsl árangurs á hreyfifærniprófi og hreystiprófinu mældust einnig marktæk miðað við allan hópinn og sama má segja þegar horft var til kynjanna og hópanna tveggja, afrekshóps og skólahóps. Tengsl árangurs á greindarprófinu og hinna prófanna þriggja reyndust hins vegar ekki marktæk. Unglingar í afrekshópi náðu enn fremur marktækt betri árangri á hugræna færniprófinu, hreyfifærniprófinu og líkamshreystiprófinu en unglingar í skólahópi,“ segir Þráinn enn fremur um niðurstöðurnar.

„Það að tengsl mælist á milli líkamshreysti og hugrænnar færni hjá unglingum í 10. bekk getur kallað á breyttar aðferðir við að bæta hugræna færni,“ segir Þráin um þýðingu niðurstaðnanna og bætir við: „Það að afreksunglingar í 10. bekk mælist með marktækt betri hugræna færni en aðrir unglingar sýnir fram á að afreksíþróttastarf hefur að öllum líkindum bæði áhrif á líkamlega og hugræna færni.“

Leiðbeinandi: Þórarinn Sveinsson, prófessor við Læknadeild.