Helena Gunnarsdóttir, MA-nemi við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild
Skortur á upplýsingum um skólagöngu og sjálf- ræði fólks með þroskahömlun er kveikjan að lokaverkefni Helenu Gunnarsdóttur til meistaraprófs í þroskaþjálfafræði. „Í lokaverkefninu tek ég opin viðtöl við sex einstaklinga með þroskahömlun á aldrinum 20–30 ára og ræði við þau um skólagöngu þeirra,“ segir hún.
Kveikjuna að rannsókninni segir Helena vera sorglegar sögur af misrétti og erfiðleikum, sem hún hafi heyrt, og tengjast skólagöngu fólks með þroskahömlun. „Mér þykir mikilvægt að fá fram sjónarmið þessa hóps um skólagöngu þess og hvað megi betur fara,“ segir Helena enn fremur.
Helena Gunnarsdóttir
Kveikjuna að rannsókninni segir Helena vera sorglegar sögur af misrétti og erfiðleikum, sem hún hafi heyrt, og tengjast skólagöngu fólks með þroskahömlun.

Endanlegar niðurstöður rannsóknarinnar liggja ekki fyrir „en væntingar mínar eru að niðurstöðurnar geti með einhverjum hætti endurspeglað þann veruleika sem fólk með þroskahömlun býr við varðandi tækifæri til menntunar og fullgildrar þátttöku í samfélaginu. Sömuleiðis hef ég ákveðnar væntingar til þess að niðurstöður endurspegli mikilvægi jákvæðra viðhorfa gagnvart hópnum og að fólk með þroskahömlun fái stuðning við hæfi á skólagöngu sinni.“
Helena segist jafnframt vona að niður- stöðurnar geti orðið til þess að hlustað verði frekar á raddir þessa hóps. „Auk þess vonast ég til þess að rannsóknin stuðli að því að fólk með þroskahömlun fái tækifæri til þátttöku í rannsóknum því þeirra sjónarhorn skiptir svo sannarlega miklu máli,“ segir hún að lokum.
Leiðbeinandi: Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, dósent við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.