Skip to main content

Sjónum beint að forsjármálum fatlaðra foreldra

James Gordon Rice, lektor við Félags- og mannvísindadeild, og Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent við Félags- og mannvísindadeild

„Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður sérstaklega á um rétt þess til fjölskyldulífs og skyldur stjórnvalda um hvað skuli gera til að tryggja að þessi réttur sé virtur. Að baki liggur löng saga mismununar og fordóma sem endurspeglast meðal annars í niðurstöðum erlendra rannsókna sem sýna að fatlaðir foreldrar eru hlutfallslega oftar sviptir forsjá barna sinna en aðrir, lögum og reglugerðum sem hindra aðgengi fatlaðs fólks að foreldrahlutverkinu, og yfirlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá 2014 þar sem lagt er að þjóðum heims að stöðva þvingaðar ófrjósemisaðgerðir.“

James Gordon Rice og Hanna Björg Sigurjónsdóttir

„Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveður sérstaklega á um rétt þess til fjölskyldulífs og skyldur stjórnvalda um hvað skuli gera til að tryggja að þessi réttur sé virtur.“

James Gordon Rice og Hanna Björg Sigurjónsdóttir

Þetta segir Hanna Björg Sigurjónsdóttir sem ásamt James Gordon Rice vinnur að rannsókn sem gengur út á að afla þekkingar og skilnings á stöðu fatlaðra foreldra hér á landi. Þar er meðal annars horft á framkvæmd og ferli barnaverndarmála, dómsúrskurði í forsjársviptingarmálum, mat á foreldra- og forsjárhæfni og byggt á viðtölum við foreldra og fagfólk. „Sérstök áhersla er lögð á að skilja samspil fötlunar og þess hvernig ákvarðanir eru teknar í forsjársviptingarmálum út frá sjónarhorni gagnrýninna félagsvísinda.“

„Með rannsókninni komumst við nær því að öðlast þekkingu og skilning á þeim flóknu samtvinnandi þáttum sem hafa áhrif á aðstæður fjölskyldna þar sem foreldrar eru fatlaðir,“ segir Hanna Björg og bætir við: „Þekking er mikilvægasta forsenda þess að hægt verði að móta kerfi og þjónustu sem stendur undir þeim kröfum sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gerir til stjórnvalda.“