Freyja Birgisdóttir, dósent við Kennaradeild
„Gengi íslenskra nemenda í PISA-könnuninni hefur hrakað jafnt og þétt undanfarinn áratug, ekki síst í lesskilningi. Þótt ýmsar ástæður fyrir því hafi verið nefndar, eins og til dæmis minnkandi lestraráhugi og yndislestur, hafa fáar rannsóknir skoðað sérstaklega hvaða þættir öðrum fremur gætu valdið slöku gengi íslenskra nemenda í lesskilningshluta PISA,“ segir Freyja Birgisdóttir, dósent í sálfræði, sem leitaði þessara þátta í nýlegri rannsókn.
PISA-rannsóknin er mörgum kunn en hún er gerð á þriggja ára fresti meðal 15 ára barna um allan heim. Þar er metið hversu vel nemendur hafa tileinkað sér hæfni og þekkingu sem tengist lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúrufræðilæsi við lok grunnskóla.
Freyja Birgisdóttir
„Gengi íslenskra nemenda í PISA-könnuninni hefur hrakað jafnt og þétt undanfarinn áratug, ekki síst í lesskilningi.“

Freyja lagði sérstakt próf fyrir 280 nemendur á landinu öllu en því var ætlað að meta orðaforða, grunnfærni í lestri, sjálfstjórn í námi, ánægju af lestri, lestrartíðni og námsaðferðir í lesskilningi. Frammistaða þeirra í prófinu var svo tengd einkunn á lesskilningshluta PISA-prófsins.
„Meginniðurstöður voru þær að orðaforði og lesfimi veittu einna sterkustu forspána fyrir því hvort nemendur lentu yfir eða undir tveimur lægstu hæfnisþrepunum í lesskilningi, jafnvel eftir að tekið hafði verið tillit til þekktra áhrifabreyta, eins og ánægju af lestri, lestrartíðni og námsaðferða í lesskilningi,“ segir Freyja.
Freyja bætir við að niðurstöðurnar bendi til þess að orðaforða og grunnlestrarfærni sé ábótavant hjá hluta 15 ára íslenskra nemenda og að slök færni á því sviði hafi áhrif á hæfni þeirra til þess að lesa sér til gagns. „Slíkar niðurstöður eru áhyggjuefni, ekki síst þar sem lestrarkennsla á unglingastigi heyrir til undantekninga í íslenskum grunnskólum. Samkvæmt þessum niðurstöðum virðist full ástæða til þess að endurskoða það fyrirkomulag og halda áfram að hlúa að bæði lesfimi og málskilningi nemenda út grunnskólann enda hvorttveggja mikilvæg forsenda fyrir góðu gengi í áframhaldandi námi og flestu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur,“ segir Freyja að endingu.