Skip to main content

Vernd vörumerkja

Þorvaldur Hauksson, MA-nemi við Lagadeild

Ímynd fyrirtækja skiptir miklu máli í nútímarekstri og stundum er sagt að vörumerkið og orðspor þess séu verðmætasta eignin. Á meðan markaðsfræðingar velta fyrir sér staðfærslu vörumerkja, hvað tryggi vörumerkjavitund og gott orðspor þess, þá er það hlutverk laganna að vernda rétt fyrirtækja til vörumerkja sem þau hafa byggt upp.

„Íslenskt atvinnu- og efnahagslíf byggist m.a. á því að vörur og þjónusta séu markaðssett með áhrifaríkum hætti. Ein undirstaða slíkrar markaðssetningar er að vörumerki njóti réttarverndar,“ segir Þorvaldur Hauksson, MA-nemi í lögfræði við Háskóla Íslands. Hann stóð sl. sumar að rannsókn sem ætlað er að varpa ljósi á lagalegar spurningar sem lúta að stofnun og viðhaldi vörumerkjaréttar, „sérstaklega með hvaða hætti notkun vörumerkis hefur áhrif á vörumerkjaréttinn að þessu leyti,“ segir Þorvaldur.

Þorvaldur Hauksson

„Íslenskt atvinnu- og efnahagslíf byggist m.a. á því að vörur og þjónusta séu markaðssett með áhrifaríkum hætti. Ein undirstaða slíkrar markaðssetningar er að vörumerki njóti réttarverndar.“

Þorvaldur Hauksson

Vörumerkjarétti er m.a. ætlað að veita eiganda vörumerkis vernd gegn því að aðrir noti það án heimildar hans.

Þorvaldur fékk áhuga á vörumerkjarétti í tengslum við laganám sitt við Háskóla Íslands og þegar hann starfaði hjá Einkaleyfastofu. „Í kjölfar þess að Helgi Áss Grétarsson, dósent við Lagadeildina, hvatti mig til að stunda rannsóknir á sviði eignaréttar, ákvað ég að sækja um styrk hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að sinna þessu verkefni.“ Styrkurinn fékkst og í haust var skýrslu skilað til sjóðsins en við gerð hennar aðstoðaði laganeminn Ásthildur Valtýsdóttir.

Vægi rannsóknarinnar felst einkum í að greina frá réttarreglum um efnið og skýra þannig lagalegt umhverfi fyrirtækja á Íslandi hvað varðar vörumerkjarétt. „Fræðileg greining á þessum lagalegu atriðum hefur ekki átt sér stað frá því gildandi lög um vörumerki tóku gildi árið 1997,“ bætir Þorvaldur við.

Kveikjan að rannsókninni að sögn Þorvaldar var áhugi á að kortleggja þær réttarheimildir sem mesta þýðingu hafa fyrir viðfangsefnið og hvernig þeim hefur verið beitt í framkvæmd. „Hin endanlega afurð verkefnisins á að vera til þess fallin að draga úr réttaróvissu á þessu sviði,“ segir Þorvaldur.

Fyrirhugað er að birta ritrýnda fræðigrein um efnið á þessu ári.

Leiðbeinandi: Helgi Áss Grétarsson, dósent við Lagadeild.