Skip to main content

Breytingar á rjúpunni

Ute Stenkewitz, doktorsnemi við Líf- og umhverfisvísindadeild

„Ég rannsaka sníkjudýrasýkingar, líkamsástand og stofnbreytingar á rjúpu á Íslandi,“ segir Ute Stenkewitz, doktorsnemi í líffræði. „Þessi rannsókn styðst við yfirgripsmikil gögn sem safnað hefur verið á Íslandi síðastliðin sjö ár og með þeim má varpa nýju ljósi á stofnsveiflu rjúpunnar.“

Ute, sem er frá Þýskalandi, hefur stundað fugla- og spendýrarannsóknir og sinnt dýravernd frá árinu 2003, mest í sjálfboðavinnu. „Mig langaði til að halda áfram að vinna að þessum málum og til að svo mætti verða fannst mér nauðsynlegt að afla mér framhaldsmenntunar í líffræði. Auk þess var þetta persónuleg áskorun sem mig langaði til að sigrast á. Ísland hefur togað í mig frá barnæsku og ég hef heimsótt landið margsinnis, ekki aðeins sem ferðamaður heldur líka í tengslum við diplómalokaritgerðina mína frá þýskum skóla árið 2006,“ segir Ute, sem sótti um doktorsnám 2009 til að rannsaka íslensku rjúpuna og fékk inngöngu.

Ute Stenkewitz

Ute, sem er frá Þýskalandi, hefur stundað fugla- og spendýrarannsóknir og sinnt dýravernd frá árinu 2003, mest í sjálfboðavinnu. „Mig langaði til að halda áfram að vinna að þessum málum og til að svo mætti verða fannst mér nauðsynlegt að afla mér framhaldsmenntunar í líffræði.“

Ute Stenkewitz

„Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að stunda doktorsnámið hér á landi vegna þess að ég finn fyrir sérstakri tengingu við landið. Áður en mér bauðst að koma til Íslands starfaði ég við spendýrarannsóknir í Bútan og þar á undan í Suður-Afríku og hafði gert ákveðnar ráðstafanir til þess að stunda framhaldsnám í Kanada. Eftir á að hyggja finnst mér allt hafa farið á besta veg,“ segir Ute.

Niðurstöður rannsóknarinnar koma til með að auka skilning á sveiflum á stofnstærð rjúpunnar og annarra tegunda með reglubundnar stofnstærðarsveiflur. Þar verður einnig að finna nákvæma lýsingu á samfélagi sníkjudýra á rjúpunni, sem gæti reynst áhugaverð þeim u.þ.b. 40 þúsund manns sem árlega neyta rjúpu hér á landi. Leiðbeinandi: Ólafur Karl Nielsen, sérfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands.