Skip to main content

Lögreglan hafði samúð með mótmælendum

Ingólfur V. Gíslason, dósent við Félags- og mannvísindadeild

Þrátt fyrir að margt í aðstæðum í búsáhaldabyltingunni hefði átt að ýta undir ofbeldi af hálfu lögreglu beitti hún í raun afar litlu ofbeldi og það var kveikjan að rannsókninni,“ segir Ingólfur V. Gíslason, lektor við Félags- og mannvísindadeild, um rannsókn á upplifun lögreglumanna á hinum örlagaríku dögum í upphafi árs 2009.

Ingólfur ræddi við tólf lögreglumenn sem stóðu vaktina í búsáhaldabyltingunni og lagði sérstaka áherslu á ofbeldi. Hann segir að fjölmargir þættir hefðu átt að ýta undir ofbeldi af hálfu lögreglu. „Meðal þessara þátta er hiti því að lögreglumennirnir voru rennsveittir í brynjunum, og fleiri þættir, svo sem hávaði, ögranir og líkamlegur sársauki en sumir lögreglumannanna voru með blæðandi skafsár,“ segir Ingólfur.

Ingólfur V. Gíslason

Ingólfur ræddi við tólf lögreglumenn sem stóðu vaktina í búsáhaldabyltingunni og lagði sérstaka áherslu á ofbeldi. Hann segir að fjölmargir þættir hefðu átt að ýta undir ofbeldi af hálfu lögreglu.

Ingólfur V. Gíslason

Viðtölin leiða í ljós að nokkrir þættir drógu úr líkum á því að lögregla beitti ofbeldi. „Í fyrsta lagi má nefna að lögreglumennirnir læra í þjálfun sinni við að stjórna mannfjölda að draga sína eigin persónu út úr atburðunum. Ekkert er gert án fyrirmæla og yfirstjórn lögreglunnar hafði ákveðið að leyfa mótmælendum að ganga mjög langt. Þar við bættist að lögreglumennirnir höfðu aldrei á tilfinningunni að þeir væru að verða undir. Í þriðja lagi má nefna að á heildina litið höfðu lögreglumennirnir samúð með mótmælendum,“ bendir Ingólfur á.

Ingólfur segir að sú friðsemdarlína sem yfirstjórn lögreglunnar hafi dregið hafi ekki verið óumdeild „og sérstaklega við árásina á lögreglustöðina við Hverfisgötu mátti litlu muna að allt færi á hvolf. Margir lögreglumannanna upplifðu þá atburði sem árás á sitt annað heimili.“

Aðspurður um þýðingu rannsóknarinnar fyrir vísindin og samfélagið segir Ingólfur að hún auki m.a. þekkingu á því hvað stuðli að ofbeldi og hvað geti komið í veg fyrir slíkt.