Skip to main content

Jöfn umgengni foreldra hefur aukist

Helga Sigmundsdóttir, Mag. Jur. frá Lagadeild 

„Rannsóknin er hluti af stærri rannsókn sem ég gerði vegna meistararitgerðar minnar við Lagadeild þar sem meginviðfangsefnið var að skoða inntak umgengni, þ.e. umgengni barns við það foreldri sem það hefur ekki lögheimili hjá,“ segir Helga Sigmundsdóttir, sem lauk meistaraprófi frá Lagadeild vorið 2013. Markmiðið var að skoða hvernig samið væri og úrskurðað um inntak umgengni, bæði reglulega, í sumarleyfum og um stórhátíðir.

Helga Sigmundsdóttir

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umgengni við umgengnisforeldri hefur verið að aukast. Staðfestum samningum um jafna umgengni hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2008 en enginn slíkur samningur var gerður árið 2004.

Helga Sigmundsdóttir

„Áhuginn kviknaði þegar ég starfaði hjá sýslumanni í málefnum barna og þar má segja að kveikjan að þessari rannsókn hafi orðið,“ segir Helga, sem nú starfar hjá Neytendastofu. Hún vildi kanna hvort umgengni við umgengnisforeldri hefði aukist undanfarin ár og hvort löggjöfin og þá einnig úrskurðir sýslumanns héldust í hendur við þá þróun og þær breytingar sem orðið hafa í samfélaginu í takt við þá umgengni sem foreldrar semja um.

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umgengni við umgengnisforeldri hefur verið að aukast. Staðfestum samningum um jafna umgengni hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2008 en enginn slíkur samningur var gerður árið 2004. Þeir fóru úr því að vera 12,8% allra staðfestra samninga hjá sýslumanninum í Reykjavík árið 2008 í 27% staðfestra samninga árið 2012.

Helga segir að mikilvægan lærdóm megi draga af niðurstöðum rannsóknarinnar um þróun barnaréttar og stöðu barna gagnvart umgengnisforeldri sínu. „Hér er lagður grunnur að frekari rannsóknum á áhrifum þeirra breytinga á barnalögum sem tóku gildi 1. janúar 2013. Þá nýtast niðurstöðurnar þeim fjölmörgu sem semja um umgengni, þeim sem kveða upp úrskurði eða dæma um umgengni og ekki síst þeim sem ráðleggja foreldrum í þessum efnum,“ segir Helga að lokum.

Leiðbeinandi: Hrefna Friðriksdóttir, dósent við Lagadeild.