Þorvaldur Þórðarson, prófessor við Jarðvísindadeild
„Rannsóknir mínar beinast fyrst og fremst að því að finna út hvernig eldfjöll virka, þ.e. átta mig á því hvað það er sem stjórnar gerð, stærð, afli og hegðun eldgosa.“ Þetta segir Þorvaldur Þórðarson, sem hefur helgað starfsævina rannsóknum á innviðum eldfjalla og hegðun þeirra í eldgosum.
Þorvaldur hefur stundað rannsóknir á eldfjöllum víða um heiminn. Rannsóknir sem hann stundaði með vísindamannahópi Jarðvísindastofnunar á gosinu í Eyjafjallajökli vöktu mikla athygli. Í þeim lagði hann m.a. mat á magn gosösku sem kom upp úr gosrásinni en heildarmassi gosefna í Eyjafjallajökli er talinn hafa verið meiri en 400 milljónir tonna. Þessar rannsóknir vann Þorvaldur sem prófessor í jarðvísindum við Háskólann í Edinborg en hann er nú fluttur hingað heim, í það sem margir kalla lifandi rannsóknastofu í eldfjallafræðum.
Þorvaldur Þórðarson
„Rannsóknir mínar beinast fyrst og fremst að því að finna út hvernig eldfjöll virka, þ.e. átta mig á því hvað það er sem stjórnar gerð, stærð, afli og hegðun eldgosa.“

„Megintilgangurinn með þessum rannsóknum mínum,“ segir Þorvaldur, „er að hjálpa til við að byggja upp þekkinguna þannig að einhvern daginn getum við ekki bara spáð fyrir um eldgos, heldur sagt fyrir um hvers konar eldgos er í vændum og hvaða áhrif það gæti haft á samfélagið og umhverfið. Með öðrum orðum, sagt fyrir um gos á svipaðan hátt og veðurfræðingar gera veðurspár.“ Þorvaldur hefur alltaf heillast af eldfjöllum og segir að eldgos séu eitt fjölbreyttasta og flóknasta náttúrufyrirbæri veraldar „og af þeim sökum mest spennandi rannsóknarverkefni sem völ er á.“
Það reynir á þolrifin að rannsaka eldsumbrot enda gjósa eldfjöll ekki eftir pöntun. „Þetta er langtímaverkefni og niðurstöðurnar koma í smáskömmtum með reglulegu millibili. Í fyrra birtum við þó meira en tíu greinar um mismunandi eldgosaferli.“
Þorvaldur er á því að samfélagslegt gildi rannsókna jarðvísindamanna sé augljóst enda snúast þær m.a. um að auka öryggi manna og viðbrögð við eldgosum. Jafnframt eru „eldfjöllin gluggi í innviði jarðarinnar og veita okkur margvíslegar upplýsingar um þau ferli sem eru í gangi neðanjarðar.“