Elizabeth Lay, MA-nemi við Uppeldis- og menntunarfræðideild
Elizabeth Lay, meistaranemi í alþjóðlegu námi í menntunarfræði, sótti innblástur í lokaverkefni sitt í eigin reynslu sem innflytjandi á Íslandi og hún kannar hvernig foreldrar innflytjendabarna á unglingsaldri koma að menntun barna sinna.
Elizabeth Lay
„Ég hyggst reyna að komast að því hvort tengsl séu á milli væntinga um aðkomu innflytjenda að námi barna þeirra á unglingsaldri og þekktra þröskulda sem þessir nemendur mæta, þar á meðal að læra íslensku, ljúka grunnskóla og laga sig að samfélaginu.“

„Samfélagið gerir ráð fyrir að innflytjendur styðji unglingana sína sem glíma bæði við ýmislegt sem tengist örum þroska á þessum aldri og áskoranir sem tengjast stöðu þeirra sem innflytjenda, en hvort tveggja hefur áhrif á metnað þeirra í skóla. Ég hyggst reyna að komast að því hvort tengsl séu á milli væntinga um aðkomu innflytjenda að námi barna þeirra á unglingsaldri og þekktra þröskulda sem þessir nemendur mæta, þar á meðal að læra íslensku, ljúka grunnskóla og laga sig að samfélaginu,“ segir Elizabeth.
Elizabeth þekkir vel hlutskipti innflytjandans því að foreldrar hennar settust á sínum tíma að í Bandaríkjunum og nú hefur hún sjálf flust til Íslands og stofnað hér fjölskyldu. „Það er ætlast til að foreldrar unglinga taki þátt í menntun þeirra en skólinn og foreldrarnir hafa mismunandi væntingar til þess í hverju sú þátttaka á að felast. Ég hef tekið eftir því að þátttaka foreldra í námi barnanna er m.a. háð félags- og efnahagslegri stöðu, tungumálakunnáttu, baklandi fólks og því hversu mikill menningarmunur er fyrir hendi. Námið gerir mér kleift að nýta þennan áhuga minn á hlutskipti innflytjenda í þágu vísindanna,“ segir hún enn fremur.
Elizabeth hyggst bæði gera könnun meðal innflytjenda og taka einstaklingsviðtöl við þá sem eiga börn á unglingsaldri til að varpa ljósi á viðfangsefnið. „Ég vonast til þess að geta fundið mynstur sem gefa til kynna tengsl á milli aðkomu innflytjenda að námi unglinganna sinna og þess hversu vel þessum foreldrahópi hefur tekist að aðlagast íslensku samfélagi. Ég vonast líka til þess að niðurstöður rannsóknarinnar veki athygli á fjölbreytileikanum meðal innflytjenda á Íslandi,“ segir Elizabeth og bætir við að rannsóknin hafi mikla þýðingu því að það sé bæði mikilvægt og gagnlegt fyrir kennara á Íslandi að öðlast skilning á stöðu innflytjenda og vilja þeirra til að örva börn sín til náms, ekki síst til að efla samband heimilis og skóla.
Leiðbeinandi: Brynja Elísabeth Halldórsdóttir, lektor við Uppeldis- og menntunarfræðideild.