Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2026

Saga
Sögutorg
Sýning og lokahóf NKG 2026
Hátíðardagskrá, afhending viðurkenninga og formleg opnun sýningar NKG 2026.
Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) fer fram á Sögutorgi í Sögu laugardaginn 30. maí kl. 14:00 - 16:00. Þar fagna nemendur úr 5.- 7. bekk skapandi hugmyndum sínum og lausnum á raunverulegum áskorunum í samfélaginu.
Á dagskrá eru kynningar nemenda, afhending viðurkenninga og aðalverðlauna keppninnar. Viðburðurinn er fyrst og fremst tileinkaður börnunum sjálfum - hugmyndum þeirra, hugrekki og sköpunarkrafti.
Á meðal gesta eru Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, auk fulltrúa frá Háskóla Íslands.
Dagskrá lokahófsins:
kl. 14:00 - 14:30
Velkomin í Sögu | Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
Opnunarávarp | Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra
Skemmtiatriði og kynningar frá nemendum
Samstarf Hí og NKG við ÖBÍ kynnt
Nöfn allra nemenda í úrslitum lesin upp
kl. 14:30 - 14:50
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari NKG, flytur lokaávarp og afhendir aðalverðlaun.
kl. 14:50
Sýning á verkum nemenda opnuð.
Léttar veitingar í boði.
Markmið NKG er að efla skapandi og gagnrýna hugsun barna og ungmenna og hvetja þau til að sjá tækifæri til umbóta í eigin samfélagi. NKG er ekki aðeins keppni heldur vettvangur þar sem hugmyndaflug, samkennd og framtíðarsýn barna fá að njóta sín.
Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) fer fram á Sögutorgi í Sögu föstudaginn 30. maí kl. 14:00 - 16:00. Þar fagna nemendur úr 5.- 7. bekk skapandi hugmyndum sínum og lausnum á raunverulegum áskorunum í samfélaginu.
