Skip to main content

Dostojevskí fyrir börn: Margslungið framhaldslíf rússnesks risa

Dostojevskí fyrir börn: Margslungið framhaldslíf rússnesks risa - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. júní 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dostojevskí er þekktasti og mest þýddi rithöfundur Rússlands, en viðtökusaga hans hefur verið flókin. Í Sovétríkjunum ríkti mikil andúð á seinni verkum hans vegna trúarlegs inntaks þeirra og andbyltingarsinnaðra sjónarmiða. Ef til vill kemur þó meira á óvart að þessi höfundur, sem er þekktur fyrir að takast á við dekkri hliðar tilverunnar í skáldverkum sínum, á sér langa sögu á sviði barna- og unglingabókmennta.

Megan Swift, prófessor og sérfræðingur í rússneskum bókmenntum, menningu og bóklist við Viktoríuháskóla í Kanada, flytur opinn fyrirlestur í Auðarsal í Veröld, fimmtudaginn 4. júní kl. 15:00-16:30, þar sem hún kannar útgáfusögu verka Dostojevskís fyrir yngri lesendur og hvernig hún birtist í námskrám frá keisaratímanum, Sovéttímanum og eftir fall Sovétríkjanna. Fyrsta bók Megan Swift, Picturing the Page: Illustrated Children’s Literature and Reading Under Lenin and Stalin (2020), hlaut tvenn bókmenntaverðlaun. Önnur bók hennar er ritstýrt greinasafn sem nefnist Revolutionary Aftereffects: Material, Social and Cultural Legacies of 1917.

Dagskrá:

  • Ólöf Garðarsdóttir, sviðsforseti Hugvísindasviðs HÍ, býður fólk velkomið og segir fáein orð um samstarf Victoríuháskóla í Bresku Kólumbíu og Háskóla Íslands.
  • Megan Swift flytur fyrirlesturinn: Dostojevskí fyrir börn: Margslungið framhaldslíf rússnesks risa.
  • Boðið upp á umræður úr sal.

Léttar veitingar

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Dr. Megan Swift, Viktoríuháskóla, Kanada

Dostojevskí fyrir börn: Margslungið framhaldslíf rússnesks risa