Ákall samtíðar og framtíðar – velferð ungs fólks
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bratti
Í tilefni af útkomu bókar Sigrúnar Aðalbjarnardóttur prófessors Lífssögur ungs fólks – Samskipti, áhættuhegðun og styrkleikar, sem Háskólaforlagið gefur út, gangast Menntavísindasvið Háskóla Íslands og rannsóknastofan Lífshættir barna og ungmenna fyrir málþingi fimmtudaginn 21. mars 2019, kl. 15.30-18.00.
Málþingið er haldið í Bratta sem er í húsakynnum Menntavísindasviðs við Stakkahlíð og er gengið inn í bygginguna frá Háteigsvegi.
Heiðursgestur: Vigdís Finnbogadóttir
Dagskrá
Setning: Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands
Ávarp: Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson
Horft til framtíðar unga fólksins – áskoranir og tækifæri - Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor
Leitin að sjálfum mér - hver er tilgangur lífsins?- Sigurður Jóhann Helgason, nemi í Tækniskólanum
Hver stund og hvert stigið skref! Starfshættir og viðhorf í Dalskóla - Hildur Jóhannesdóttir, skólastjóri Dalskóla í Reykjavík
Hvers vegna skipta áhrif ungs fólks máli? - Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, nemi í Háskóla Íslands og formaður ungmennaráðs UNICEF
„Gefðu mér tíma - ég þarf pláss” - Páll Ólafsson, sviðsstjóri Ráðgjafar og fræðslusviðs Barnaverndarstofu
Vissu miðaldamenn hvernig barninu líður? Uppeldi og uppreisn vandræðabarnsins Egils Skalla-Grímssonar - Ármann Jakobsson, prófessor í íslensku við Háskóla Íslands og rithöfundur
Málþingsstjóri er Kristjana Stella Blöndal, dósent í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands
Að málþingi loknu kl. 18.00 verður boðið upp á léttar veitingar
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
Ákall samtíðar og framtíðar – velferð ungs fólks