Miðbiksmat í jarðfræði - Adolph Jr. Manadao Bravo

Askja
Fundarsalur Jarðvísindastofnunar,3 hæð
Heiti ritgerðar: Flæði jarðhitavökva og steindaútfellingar í jarðhitakerfum (Experimental and Numerical Investigation of Multiphase Flow and Mineral Deposition in Geothermal Systems)
Nemandi: Adolph Jr. Manadao Bravo
Doktorsnefnd:
Dr. Andri Stefánsson, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands
Dr. Samuel W. Scott, rannsóknasérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands
Dr. Erlend Oddvin Straume, umsjónarmaður HVER tilraunasetur, Háskóli Íslands
Ágrip
Flæði vökva gegnir lykilhlutverki í jarðhitakerfum og nýtingu þeirra þar sem það stýrir flutningi gufu og vatns og hefur áhrif á samspil steinda og vökva í borholum og örðum innviðum. Breytingar á þrýstingi og hitastigi hafa áhrif á flæði og fasadreifingu, sem leiðir til breytinga á m.a á þrýstingi og getur leitt til útfellinga. Núverandi líkön fyrir flæði jarðhitavökva byggja að mestu á loft–vatns og olíu–gas tilraunum við aðstæður sem eru ólíkar jarðhitaumhverfi. Slíkt takmarkar notagildi þeirra og dregur úr áreiðanleika. Markmið doktorsverkefnisins er að skoða samband flæðis og þess við steindir við jarðhitaaðstæður bæði með tilraunum og hermunum. Tilraunabúnaður hefur verið hannaður og smíður til að endurskapa raunhæfar jarðhitaaðstæður. Gögn úr tilraunum eru notuð til að rannsaka gas–vökva skrið og þróun flæðigerða við jarðhitaaðstæður ásamt samspili steinda og jarðhitavökva.
Adolph Jr. Manadao Bravo
