Skip to main content

Föstudagskaffi Mýrarinnar: ​FÖNN Ráðgjöf

Föstudagskaffi Mýrarinnar: ​FÖNN Ráðgjöf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. maí 2026 9:30 til 10:30
Hvar 

Gróska

Mýrin

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í föstudagskaffi Mýrarinnar (frumkvöðlaseturs Vísindagarða HÍ, Gróska 1. hæð) föstudaginn 22. maí kemur dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch frá FÖNN Ráðgjöf í heimsókn.

​Sandra er frumkvöðull, stjórnendamarkþjálfi og ráðgjafi með víðtæka reynslu úr íslensku nýsköpunar- og lífvísindaumhverfi. Hún hefur komið að uppbyggingu og leiðsögn fjölmargra sprotafyrirtækja og sinnt fjölbreyttum leiðtogahlutverkum á mörkum vísinda og nýsköpunar.

​Í gegnum Fönn Ráðgjöf veitir hún sprotafyrirtækjum í líf- og heilbrigðistækni allhliða stuðning með því að efla leiðtogafærni og styðja við fyrirtækjauppbyggingu.

​Sandra mun veita innsýn inn í heim þar sem vísindi og nýsköpun mætast og deila reynslusögum úr eigin vegferð frá rannsóknum til frumkvöðlastarfa, stjórnunar og ráðgjafar.

​Heitt á könnunni og nýbakaðar vöfflur í boði!