Eiga peningastefna og opinber fjármál að toga í sömu átt?

Hvenær
1. júní 2026 11:00 til 12:00
Hvar
Oddi
Stofa 312
Nánar
Aðgangur ókeypis
Oftast er gert ráð fyrir að peningastefna og opinber fjármál eigi að vinna í sömu átt, en ný rannsókn bendir til þess að annað gildi í opnum hagkerfum.
Þegar verðbólga eykst eða gengi hreyfist er hagkvæmast að þessi tvö stjórntæki vinni í gagnstæðar áttir. Þá verða áhrif stjórntækjanna á gengið til þess að verðbólga minnkar án þess að atvinnuleysi aukist mikið.
Erindið verður flutt á ensku.
Erindið heldur Tommy Sveen, deildarforseti hagfræðideildar Norska viðskiptaháskólans (NHH).
