Skip to main content

Þarf að breyta stjórnarskrá ef Ísland ákveður að ganga í ESB?

Þarf að breyta stjórnarskrá ef Ísland ákveður að ganga í ESB? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. maí 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Lögberg

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Lagastofnun stendur fyrir hádegismálstofu þar sem rædd verða álitaefni um nauðsyn stjórnarskrárbreytinga í tengslum við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Á málstofunni verður m.a. fjallað um hvaða breytingar þyrfti að gera á stjórnarskrá ef til aðildar kæmi og hvenær í ferlinu þyrfti að gera þær. Jafnframt verður gerð grein fyrir niðurstöðum nýlegrar álitsgerðar Lagastofnunar um efnið sem unnin var fyrir utanríkismálanefnd Alþingis.

Framsögumenn eru höfundar álitsgerðarinnar, Arnaldur Hjartarson aðjunkt og Hafsteinn Þór Hauksson dósent.

Álitsgerðina má finna hér:  https://lagastofnun.hi.is/is/utgafa/skyrslur-og-alitsgerdir

Framsögumenn eru höfundar álitsgerðarinnar, Arnaldur Hjartarson aðjunkt og Hafsteinn Þór Hauksson dósent.

Þarf að breyta stjórnarskrá ef Ísland ákveður að ganga í ESB?