Skip to main content

Hestafræðideild

Kona hlappar hesti á nefið

Deildin er opinber miðstöð menntunar og rannsókna á sviði hestamennsku, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu á Íslandi. Námið í Hestafræðideild er fjölbreytt að viðfangi og aðferðum þar sem bókleg og verkleg kennsla er samþætt, kennslan byggist á fyrirlestrum og lestri fagefnis. Í náminu er lögð mikil áhersla á verklega þjálfun í formi einkakennslu, hópkennslu og sýnikennslu.

Kona lemur gjóandi járn skeifu með hamri
kona klappar brúnum hesti inni í hesthúsi

Framhaldsnám

Markmið Hestafræðideildar er að veita fagmenntun á sviði reiðmennsku, reiðkennslu, tamninga, og hestahalds og að vinna að þróun og nýsköpun þekkingar, á öllum sviðum er varða íslenska hestinn, með rannsóknum. Með þessum hætti verði stuðlað að aukinni arðsemi í atvinnugreininni, útbreiðslu hestamennskunnar og velferð hestanna.

Í meistaranám í hestafræðum við deildina er áherslan er á rannsóknarnám með sterkan fræðilegan bakgrunn.

Hafðu samband

Þjónustuborð Háskóla Íslands á Hólum er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum. Hægt er að senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.

Nemendur geta einnig nýtt sér þjónustuborð HÍ á Háskólatorgi.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Aðalbygging HÍ á Hólum