Skip to main content

Hestafræði, MS

Hestafræði, MS

Hestafræði

MS – 120 einingar

Meistaranám í hestafræði er ætlað að mennta öfluga sérfræðinga/vísindamenn á sviði hestafræði, sem geta skapað nýja þekkingu með vönduðum rannsóknum og gagnrýninni hugsun og þannig þróað hestamennskuna sem fræði- og atvinnugrein. Náminu er einnig ætlað að vera góður grunnur fyrir doktorsnám.

Skipulag náms

X

Vísindalegar aðferðir (MSR1310120)

Námskeiðið fjallar um heimspekilegan og siðfræðilegan grunn vísinda, helstu grundvallaratriði tengd því að stunda vísindalegar rannsóknir, s.s. skrif styrkumsókna, hönnun tilrauna, söfnun og túlkun gagna og hvernig á að koma niðurstöðum á framfæri með því að skrifa vísindagreinar og flytja fyrirlestra. Fyrirlestrar munu fjalla um heimspeki og siðfræði vísinda, vísindalegar aðferðir og tilraunauppsetningu, þar sem m.a. verður farið í muninn á tilraunum og öðrum rannsóknanálgunum, tilgátur, orsakir og afleiðingar í rannsóknum, endurtekningar, tilviljanakennda gagnasöfnun og mismunandi tilraunauppsetningar. Tilraunauppsetningar verða líka settar í samhengi við algengar tölfræðiaðferðir. Sérstök áhersla verður á rannsóknir á sviði fiskeldis, fiskalíffræði, sem og sjávar og vatnalíffræði almennt, en mun endurspegla rannsóknaáherslur nemenda í hvert sinn. Nemendur þurfa að lesa, gagnrýna og flytja fyrirlestur um aðferðafræði og/eða birtar vísindagreinar. Þá vinna nemendurnir að verkefnum sem tengjast (i) heimspeki og siðfræði vísinda, (ii) því hvernig hanna á tilraunir, setja þær upp og túlka niðurstöður sem úr þeim fæst og (iii) tölfræði. Nemendurnir þurfa líka að skila verkefnum tengdum skrifum á vísindagreinum/styrkumsóknum.

X

Tölfræði og gagnavinnsla (TOG4106210)

Farið er yfir grunnhugtök tölfræðinnar svo sem þýði, úrtak og breytu. Lært verður að nota lýsandi tölfræði og skilja dreifingu, áreiðanleika, réttmæti og áhrifstölur. Nemandi lærir að setja fram tilgátur og beita ályktunartölfræði, t-prófi, einþátta og fjölþátta fervikagreiningu, aðhvarfsgreiningu, kí-kvaðrati, óparametrísku prófi, óparametrískum aðhvörfum og fylgniútreikningum. Farið er í úrvinnslu gagna þar sem notaðar eru endurteknar mælingar. Nemendur læra að setja gögn myndrænt fram og að beita tölfræðiforritum.

X

Þjálfunarlífeðlisfræði II (ÞLE4304210)

Fjallað ítarlega um þá lífeðlisfræðilegu þætti sem má meta hjá hestum til að leggja mat á þjálfunarálag og/eða þjálfunarframfarir, s.s. hjartslátt, efnaþætti í blóði (mjólkursýra, rauð blóðkorn).

Fjallað verður um þann tækjabúnað og mælitæki sem nota má á hagnýtan hátt við þjálfun hesta, mat á þjálfunarálagi og þjálfunarástandi. Nemandinn fær þjálfun í að nota hjartsláttarmæla á hesta, mæla mjólkursýru á þjálfunarstað, mæla líkamshita og öndunartíðni hesta, bæði með því að setja hesta á hlaupabretti og þjálfa hesta á reiðvelli innan-og utandyra, og að túlka niðurstöður þeirra mælinga sem fást. Fjallað verður um kosti og galla mismunandi mæliaðferða við ólíkar aðstæður (hlaupabretti vs. reiðvöllur, inni vs. úti). Fjallað verður um hvaða mat fæst við ólíkar astæður, s.s. hefðbundna þjálfunarstund, staðlaðar aðstæður/staðlað þjálfunarpróf. Áhersla námskeiðsins er á verklegar mælingar, notkun og túlkun niðurstaðna sem fást úr þeim.

X

MS ritgerð í hestafræði (MAR5090210, MAR5090210)

Nemandinn velur viðfangsefni lokaverkefnis, í samráði við leiðbeinanda. Nemandinn þarf að setja fram rannsóknarspurningu/ar, velja viðeigandi og viðurkenndar rannsóknaraðferðir við að safna gögnum og til að vinna úr gögnunum. Nemandinn þarf að tryggja að hann hafi tilskilin leyfi til að framkvæma rannsóknina. Hann þarf að setja niðurstöður skipulega og skýrt fram, túlka þær og ræða í umræðum og setja fram ályktun. Nemandinn öðlast þjálfun í vísindalegum skrifum við að skrifa lokaritgerð sem innheldur inngang (bakgrunnskafla), efni og aðferðir, niðurstöður, umræður og ályktun. Nemandinn skilar verkinu, og ver það í lokuðum fyrirlestri fyrir prófnefnd. Þegar nemandi hefur fengið tækifæri á að endurbæta og lagfæra verkefnið eftir vörnina, flytur hann opinn fyrirlestur og svarar spurningum áheyrenda

X

MS ritgerð í hestafræði (MAR5090210, MAR5090210)

Nemandinn velur viðfangsefni lokaverkefnis, í samráði við leiðbeinanda. Nemandinn þarf að setja fram rannsóknarspurningu/ar, velja viðeigandi og viðurkenndar rannsóknaraðferðir við að safna gögnum og til að vinna úr gögnunum. Nemandinn þarf að tryggja að hann hafi tilskilin leyfi til að framkvæma rannsóknina. Hann þarf að setja niðurstöður skipulega og skýrt fram, túlka þær og ræða í umræðum og setja fram ályktun. Nemandinn öðlast þjálfun í vísindalegum skrifum við að skrifa lokaritgerð sem innheldur inngang (bakgrunnskafla), efni og aðferðir, niðurstöður, umræður og ályktun. Nemandinn skilar verkinu, og ver það í lokuðum fyrirlestri fyrir prófnefnd. Þegar nemandi hefur fengið tækifæri á að endurbæta og lagfæra verkefnið eftir vörnina, flytur hann opinn fyrirlestur og svarar spurningum áheyrenda

X

Samantekt heimilda (STH4210210)

Nemandinn velur viðfangsefni samantektarinnar (e. review), í samráði við leiðbeinanda, þar sem gerð er samantekt á sérhæfðu fræðasviði innan hestamennskunnar. Saman ræða þeir efni viðeigandi ritrýndra greina/bókakafla um efnið. Að lokum skilar nemandinn samantekt (e. review) um viðfangsefnið og flytur um það fyrirlestur. Umfang verkefnisins miðast við 6-10 þús orð.

X

Tölfræði með R (STA1306180)

Námskeiðinu er skipt í þrjá meginþætti

A – kynning á tölfræði í R og R-studio. Grunnvirkni R, hvernig flytja má inn gögn og vinna með þau.Myndræn framsetning gagna .

B – Yfirlit um helstu tölfræðileg hugtök, tilgátuprófun, mismunandi gerð breyta. Tölfræðipróf fyrir bæði samfeldar og flokkabreytur. Notkun á R til tölfræðigreiningar og hvernig prófað er fyrir forköfum þeirra.

C – Notkun tölfræði í rannsóknarverkefni framhaldsnemans. Hver nemandi skipuleggur tölfræðigreiningu verkefnisins síns, finnur út hvaða tölfræðipróf henta best og kynnir fyrir hópnum til umræðna.

X

Vísindaskrif (VSK4406210)

Fjallað er um vísindaskrif, lögð er áhersla á að fjalla um málfar og framsetningu við vísindaskrif og uppbyggingu á vísindagrein. Fjallað er um hvaða efnisþættir eiga að koma fram í hverjum kafla vísindagreinar, inngangi, efni og aðferðum, niðurstöðum, umræðum og ályktun. Farið verður í frágang heimilda við vísindavinnu. Farið verður í heimildaleit í fræðilegum gagnasöfnum og notkun heimildaforritsins EndNote.

X

Þátttaka í ráðstefnu (RAD1602, RAD1602)

Þátttaka í fagráðstefnu, í samráði við leiðbeinanda.

X

Þátttaka í ráðstefnu (RAD1602, RAD1602)

Þátttaka í fagráðstefnu, í samráði við leiðbeinanda.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við þjónustuborð Háskólans á Hólum og senda fyrirspurnir varðandi nám og umsóknir á netfangið holar@hi.is.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Aðalbygging háskóla íslands á hólum