Skip to main content

Skólahestar

4 knapar á hestum inni í reiðhöll

Við skólann starfa svokallaðir skólahestar sem eru í eigu HÍ á Hólum.

Um skólahesta gilda þessar reglur:

  • Skólahestar þ.m.t. skeiðhestar eru allan jafnan notaðir í fleiri en eitt námskeið/verkefni og er það umsjónarmaður skólahesta sem sér um at úthluta hross í hvert verkefni.
  • Það má enginn nema nemandinn sem hefur fengið úthlutað hestinn þjálfa hann eða fara á bak á hann án samráðs við umsjónarkennara.

Þjálfunarhestar og trippi:

  • Hross sem skólinn skaffar er allan jafnan í umsjá nemandans sem fær hann úthlutaðan.
  • Nemandinn skal sjá til þess að hesturinn verði rétt fóðraður, verði járnaður ef þarf ásamt sinna honum ef koma upp veikindi eða slys. Kalla til dýralækni í samráði við búsmann á vakt og sinna hestinum eftir þörfum.
  • Óheimilt að fara með hestana af staðnum, taka þátt í keppni eða öðrum verkefnum án samráðs við umsjónarkennara. Sama gildir um utanaðkomandi afskipti eða aðstoð á staðnum.
  • Óheimilt er að aðrir en nemandinn sjálfur ríði hestinum nema í samráði við kennara viðkomandi námskeiðs.
  • Þar sem þjálfun hestsins telst sem verkefni í skólanum gilda ákvæði úr námsreglum skólans um próf, verkefni og endurtökurétt. Brot á þessum reglum telst til 1.11 þar sem segir að alvarlegum brotum skal vísa til deildarstjóra til úrskurðar. Brot af þessu tagi geta leitt til þess að nemandi falli í námskeiðinu og fyrirgeri rétti sínum til endurtöku þess á viðkomandi skólaári. Þau geta einnig leitt til áminningar eða brottvísunar úr skólanum.
  • Ætlast er til að hestarnir séu þjálfaðir innan skólatíma nema í samráði við kennara viðkomandi námskeiðs.

Nemendum í hestafræði ber að kynna sér vel reglur sem gilda um notkun og umönnun hesta í þeirri aðstöðu sem nemendur hafa aðgang að á vegum HÍ á Hólum og út frá kröfum mismunandi námskeiða. Umsjónarkennarar þeirra námskeiða sem við á veita nánari upplýsingar.