Auk þeirra hesta sem Háskólinn leggur til þurfa nemendur sjálfir að koma með hesta, svokallaða nemendahesta. Mismunandi kröfur eru gerðar til nemendahestanna eftir námsárum. Í námskeiðum þar sem nemandinn þarf að nota nemendahesta þarf kennari námskeiðsins að samþykkja þá. Í náminu ber að fylgja fyrirmælum kennara viðkomandi námskeiðs varðandi þjálfun og aðra meðhöndlun hestsins. Gæði gangtegunda, hreyfinga og þjálfunar hestsins hafa áhrif á framfarir nemandans og námsárangur. Því betri sem hesturinn er, því meiri árangur næst. Í fyrsta tíma hvers námskeiðs skulu nemendahestar mæta á járnum og í þjálfun. Þeir skulu vera í góðu fóðurástandi, þ.e. holdastigi 3–3,5. Ef hesturinn er óhæfur til kennslu telst það fjarvist nemandans þar sem hann getur ekki tekið þátt í kennslunni. Ef um skyndileg meiðsli eða veikindi hests er að ræða gilda almennar reglur um fjarvistir enda liggi fyrir dýralæknisvottorð. Nemandinn sér sjálfur um járningar, munnholsskoðanir og aðkomu dýralæknis ef þess þarf. Öll valkvæð meðhöndlun hestsins, svo sem nudd, hnykkingar eða önnur sambærileg meðferð, skal fara fram utan kennslustunda og má ekki hafa áhrif á mætingu eða þátttöku nemandans í kennslu. Ætlast er til að hestarnir séu þjálfaðir innan skólatíma nema annað hafi verið samþykkt af kennara viðkomandi námskeiðs. Á skólatíma er óheimilt að fara með hestana af staðnum eða taka þátt í keppni eða öðrum verkefnum án samþykkis umsjónarkennara. Sama gildir um utanaðkomandi afskipti eða aðstoð við þjálfun hestanna á staðnum. Óheimilt er að aðrir en nemandinn sjálfur ríði hestinum nema með samþykki kennara viðkomandi námskeiðs. Þar sem þjálfun hestsins telst verkefni í náminu gilda ákvæði námsreglna skólans. Ef nemandi er ekki eigandi þess hests sem hann notar í náminu skal hann við upphaf viðkomandi námskeiðs skila inn undirritaðri staðfestingu eiganda um að hesturinn sé lánaður til notkunar í náminu (sjá eyðublað á heimasíðu). Nemendur hestafræðideildar skulu vera með gilda slysatryggingu allan námstímann. Öll hross sem eru á vegum nemenda á námstímanum eru á ábyrgð nemandans en ekki skólans. Nemendum er í sjálfsvald sett hvort þeir kjósa að tryggja hross sín sérstaklega. Varahestar eða ef skipta þarf um nemendahest Í sumum námskeiðum er mælt með að nemendur hafi aðgang að varahesti. Varahestur sem samþykktur hefur verið af umsjónarkennara má nota tímabundið ef nemendahesturinn forfallast. Ef nemendahesturinn getur ekki verið notaður í lokaprófi getur nemandinn komið með varahest, enda hafi hann sannanlega þjálfað hann sjálfur í að minnsta kosti einn mánuð fyrir lokapróf. Ef nemendahestur forfallast innan við mánuði fyrir lokapróf getur nemandinn fengið tilboð um skólahest út námskeiðið. Leitast er við að finna hest af sambærilegum gæðum og nemendahesturinn sem forfallaðist, þó það sé ekki alltaf mögulegt. Tilboð um lánshest frá skólanum gildir ekki í námskeiðunum KYD, ÞJK I og ÞJK II. Í námskeiðum þar sem nemendur leggja sjálfir til hest má skipta um hest eftir að námskeið hefst, en aðeins ef umsjónarkennari telur nýja hestinn af betri gæðum og/eða betur til þess fallinn að styðja við framgang nemandans í náminu og að skiptin hafi ekki neikvæð áhrif á framvindu námskeiðsins. Nemendum í hestafræði ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um notkun og umönnun hesta í þeirri aðstöðu sem þeir hafa aðgang að á vegum HÍ á Hólum. Umsjónarkennarar viðkomandi námskeiða veita nánari upplýsingar eftir því sem við á. Tryggingar Nemendur sjá sjálfir um að tryggja hesta sína og Háskóli Íslands á Hólum ber enga ábyrgð á þeim hestum sem nemendur koma með sjálfir. Mælt er með að nemendur tryggi hesta sem þau nota í náminu. Dýralækniskostnaður vegna nemendahesta er ekki greiddur af HÍ á Hólum. Nemendum í hestafræði er skylt að tryggja sig áður en kennsla hefst. Oft duga til skilmálar heimilistrygginga en nemendum er bent á að kynna sér vel skilmála tryggingafélaga sinna. Kostnaður vegna nemendahesta Nemendur leigja aðstöðu í hesthúsum HÍ á Hólum og greiða fyrir leigu og fóðrun hestanna. Nemendur leigja stíur af Hesthólum ehf. Leiga á stíu er um 29.000 kr. á mánuði og er rukkuð mánaðarlega af eigendum hússins. Fóður, undirburður í stíur og bætiefni fyrir hestinn kosta 20.000 kr. á mánuði fyrir hvern hest og er rukkað mánaðarlega af skólanum sem leggur til þessi aðföng. Lágmarksleigutími á stíum fyrir nemendahesta og aukahesta á Brúnastöðum er annað hvort frá 1.–15. eða 16.–30./31. hvers mánaðar. Hagstæðast er því að koma með hesta í húsið í upphafi mánaðar eða rétt eftir miðjan mánuð. Hestar sem nemendur þurfa að útvega eru eftirfarandi, eftir námsárum: 1. námsár Nemandinn leggur til eigin reiðhest, fyrir námskeiðin Þjálfun reiðhestsins I (hefst í október) og á vormisseri í Þjálfun reiðhestsins II. Ætlast er til að sami hesturinn sé notaður allan veturinn. Hesturinn skal: Vera vel taminn og þjálfaður klárhestur eða alhliða hestur. Vera vel þjálfaður, með grundvallaratriðin í lagi, þ.e. rólegur, stefnufastur, taktgóður, sveigjanlegur. Hann kunni grunnábendingar og fimiæfingarnar; framfótasnúning, krossgang og opinn sniðgang. Nemandinn verður að geta sýnt allar gangtegundir á hestinum, nema skeið. Ráðlegt er að vera búin/n að keppa á hestinum en gott viðmið er að hafa náð meistaraflokkseinkunn eða að hesturinn sé líklegur til að ná því á námstímanum. Mikilvægt er að engin gangtegund sé mjög léleg og ekki sé um alvarlegan misstyrk að ræða (t.d . að annað stökkið vanti). Hesturinn má ekki vera með hegðunarvandamál svo sem slægð, leti, ofríki, tungubasl, hrekki, kergju, spennu eða hræðsluköst. Hann verður að vera rólegur í umgengni og samstarfsfús. Ekki má koma með ropara eða vefara. Vera a.m.k. 6 vetra þegar önnin hefst og helst ekki eldri en 14 vetra. Hafa dýralæknisvottorð um að hesturinn sé heilbrigður og skal nemandi framvísa því vottorði við upphaf námsskeiðsins. Varast skal að koma með hest með sjúkrasögu af álagsmeiðslum. Mælt er með að þyngd nemandans sé ekki meira en 30% af þyngd hestsins. Nemandanum er frjálst að senda myndband af hesti til umsjónarkennara (mette@hi.is) til að fá bráðabirgðamat á hann. Nemandinn á sjálfur verður að vera knapi á hestinum, að hafa ekki tónlist undir myndbandinu og að láta allar upplýsingar fylgja, svo sem aldur, keppnisárangur o.s.frv. Ef nemandinn er ekki sjálfur eigandi hestsins, er nauðsynlegt að nemandinn og eigandinn geri skriflegan samning um hest til láns í náminu. Þetta á einnig við þó nemandi og eigandi séu í sömu fjölskyldu. Nemendur sjá sjálfir um að tryggja hesta sína og Háskóli Íslands á Hólum ber enga ábyrgð á þeim hestum sem nemendur koma með sjálfir. Mælt er með að nemendur tryggi hesta sem þau nota í náminu. Dýralækniskostnaður vegna nemendahesta er ekki greiddur af HÍ á Hólum. 2. námsár Nemandinn notar eigin hest á vormisseri, í námskeiðunum Þjálfun II og Þjálfun III - verknám. Sami hestur er notaður á fjórðu, fimmtu og sjöttu önn námsins. Hesturinn skal: Vera a.m.k. 6 vetra þegar önnin hefst og helst ekki eldri en 14 vetra. Uppfylla sömu gæði í gangtegundum og hreyfingu og nemendahestar á 1. námsári ásamt því að nemandinn verður að geta sýnt allar gangtegundir á hestinum. Uppfylla lágmarksviðmið sem gilda fyrir hest í lokaprófi á 1. ári. Vera vel þjálfaður, með grundvallaratriðin í lagi, þ.e. rólegur, stefnufastur, taktgóður, sveigjanlegur. Hann kunni grunnábendingar og fimiæfingarnar; framfótasnúning, afturfótasnúning, krossgang og lokaðan sniðgang á feti en opinn á tölti. Hesturinn má ekki vera með hegðunarvandamál svo sem slægð, leti, ofríki, tungubasl, hrekki, kergju, spennu eða hræðsluköst. Hann verður að vera rólegur í umgengni og samstarfsfús. Ekki má koma með ropara eða vefara. Vera tilbúinn til að taka þátt í keppni þar sem nemandinn mun keppa á hestinum á opinberum mótum á námstímanum. Hafa dýralæknisvottorð um að hesturinn sé heilbrigður og skal nemandi framvísa því vottorði við upphaf námsskeiðsins. Varast skal að koma með hest með sjúkrasögu af álagsmeiðslum. Mælt er með að þyngd nemandans sé ekki meira en 30% af þyngd hestsins. Nemandanum er frjálst að senda myndband af hesti til umsjónarkennara (mette@hi.is) til að fá bráðabirgðamat á hann. Nemandinn á sjálfur verður að vera knapi á hestinum, að hafa ekki tónlist undir myndbandinu og að láta allar upplýsingar fylgja, svo sem aldur, keppnisárangur o.s.frv. Ef nemandinn er ekki sjálfur eigandi hestsins, er nauðsynlegt að nemandinn og eigandinn geri skriflegan samning um hest til láns í náminu. Þetta á einnig við þó nemandi og eigandi séu í sömu fjölskyldu. Nemendur sjá sjálfir um að tryggja hesta sína og Háskóli Íslands á Hólum ber enga ábyrgð á þeim hestum sem nemendur koma með sjálfir. Mælt er með að nemendur tryggi hesta sem þau nota í náminu. Dýralækniskostnaður vegna nemendahesta er ekki greiddur af HÍ á Hólum. 3. námsár Á fyrstu dögum haustannar þriðja árs þarf nemandinn að standast próf á hestinum og er það lágmarkskrafa til að geta tekið þátt í námskeiðinu. Þetta er til að tryggja að nemandinn sé með nægilega góðan hest fyrir verkefni vetrarins. Prófið felur í stuttu máli í sér að sýna hestinn á öllum gangtegundum, úti og inni og á báðar hendur, einnig reiðleiðir, t.d. riðið á hringnum, skipt á hringum, skipt yfir allan völlinn, liðkandi og safnandi fimiæfingar, bakk, slakur taumur á brokki, taumur gefinn á feti og skeið á beinni braut. Á lokaári leggur nemandinn til tvo hesta. Keppnishest - fyrir námskeiðin Þjálfun keppnishesta I (haustönn) og Þjálfun keppnishesta II (vorönn). Hesturinn má ekki hafa verið notaður í lokaprófi í Reiðmennsku og þjálfun keppnishesta I-II eða Þjálfun keppnishesta I-II áður, né hafa verið í verðlaunasæti á landsvísu með annan knapa. Kynbótahest - sem þarf að vera á 5. eða 6. vetri og er notaður í námskeiðunum Þjálfun IV (seinni stuttönn að hausti) og Kynbótahross - þjálfun og dómar (vorönn). Gæði kynbótahest og skilyrði fyrir notkun hans náminu: Í lokaverkefni KYD6304190 á nemandinn að sýna vel þjálfað kynbótahross, 5 eða 6 vetra gamalt. Verkefninu er stillt upp sem kynbótasýningu. Nemandinn kemur með hestinn með sér í seinni hluta námskeiðsins KYD6304190 (seinni stuttönn). Hesturinn verður að vera gangsettur og búinn að ná jafnvægi á tölti í a.m.k. einum hraðaflokki og geta sýnt hinar gangtegundirnar(skeið valfrjálst). Mikilvægt er að engin gangtegund sé mjög léleg og ekki sé um alvarlegan misstyrk að ræða (t.d .að annað stökkið vanti). Hesturinn verður að geta náð að lágmarki einkunninni 8,0 fyrir tölt og fegurð í reið, eða vera líklegur til að ná því á námstímanum. Hesturinn skal vera vel þjálfaður, með grundvallaratriðin í lagi, þ.e. rólegur, stefnufastur, taktgóður og frjáls/sveigjanlegur. Hann kunni grunnábendingar, að víkja undan fæti og sé kominn með lágmarks skilning fyrir samspil ábendinga. Nemandinn verður að geta sýnt allar gangtegundir á hestinum. Hesturinn má ekki vera með hegðunarvandamál svo sem slægð, leti, ofríki, tungubasl, hrekki, kergju, spennu eða hræðsluköst. Hann verður að vera rólegur í umgengni og samstarfsfús. Ekki má koma með ropara eða vefara. Þegar námskeiðið hefst verður hesturinn metinn af umsjónarkennara hvort hann samþykkir hestinn í verkefnið. Mælt er með að þyngd nemandans sé ekki meira en 30% af þyngd hestsins. Nemandanum er frjálst að senda myndband af hesti til umsjónarkennara (mette@hi.is) til að fá bráðabirgðamat á hann. Nemandinn á sjálfur verður að vera knapi á hestinum, að hafa ekki tónlist undir myndbandinu og að láta allar upplýsingar fylgja, svo sem aldur, keppnisárangur o.s.frv. Skila þarf dýralæknisvottorði um að hesturinn sé heilbrigður og skal nemandi framvísa því vottorði við upphaf námsskeiðsins. Varast skal að koma með hest með sjúkrasögu af álagsmeiðslum. Ef nemandinn er ekki sjálfur eigandi hestsins, er nauðsynlegt að nemandinn og eigandinn geri skriflegan samning um hest til láns í náminu. Þetta á einnig við þó nemandi og eigandi séu í sömu fjölskyldu. Nemendur sjá sjálfir um að tryggja hesta sína og Háskóli Íslands á Hólum ber enga ábyrgð á þeim hestum sem nemendur koma með sjálfir. Mælt er með að nemendur tryggi hesta sem þau nota í náminu. Dýralækniskostnaður vegna nemendahesta er ekki greiddur af HÍ á Hólum. facebooklinkedintwitter