Hér má finna kennlufyrirkomulag og skipulag allra deilda HÍ á Hólum skólaárið 2026-2027. Kennsla haustannar hefst að jafnaði með nýnemadögum heima á Hólum. Staðlotur eru oftast haldnar á Hólum í Hjaltadal en stundum skipulagðar í öðrum landshlutum. Skyldumæting er í lotur óháð því hvar og hvenær þær eru haldnar. Loturnar eru oftast í tvo til fjóra daga 2-3 sinnum á misseri. Fyrir utan lotur er námið óháð stað en ekki alltaf stund og geta nemendur þurft að mæta stundum í rafrænar kennslustundir, hlusta/horfa á fyrirlestra, taka þátt í umræðum og/eða verkefnavinnu. Nemendum ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um skipulag og mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í. Ekki er víst að staðbundin lota standi alla viðkomandi viku. Lota hefst að jafnaði á mánudegi en lok lotunnar fara eftir námskeiðum hverju sinni. Nemendum ber að kynna sér vel þær reglur sem gilda um skipulag og mætingar í þeim námskeiðum sem þau eru skráð í. Varðandi flokkun námskeiða eftir árum er miðað við skilgreinda uppsetningu á fullu námi í þrjú ár, skv. námskrá. FerðamáladeildKennslufyrirkomulag Nám í ferðamáladeild er skipulagt sem fjarnám með staðbundnum lotum. Miðað er við að kennsludagurinn sé skipulagður frá kl. 9:00 til 16:00, nema annað sé tekið fram í kennsluáætlun eða námskeiðslýsingu. Mikilvægt er að nýnemar taki þátt í nýnemadögum og almennt er skyldumæting í lotur. Hafi nemandi ekki tök á að mæta í lotu ber honum að hafa samband við kennara viðkomandi námskeiðs, þar sem skipulag og dagskrá lotudaga getur verið mismunandi eftir námskeiðum. Athugið að lotur geta farið fram á öðrum stöðum en á Hólum og verður það kynnt sérstaklega innan hvers námskeiðs. Einnig má gera ráð fyrir að í tengslum við lotur verði boðið upp á félagslega og fræðandi dagskrá utan hefðbundins kennslutíma. Slíkir viðburðir geta verið á vegum deildarinnar og/eða nemenda og verða auglýstir þegar nær dregur hverri lotu. Markmið þeirra er að efla tengsl innan nemendahópsins, stuðla að góðum samskiptum og skapa tækifæri fyrir nemendur, starfsfólk og aðra gesti til að kynnast betur. Hluti af námi nemenda fer fram á verknámsstað hjá viðurkenndu ferðaþjónustufyrirtæki þar sem nemandi öðlast reynslu af fjölbreyttum verkefnum sem og innsýn í stjórnun og rekstur viðkomandi verknámsstaðar. Vinnutími tekur mið af vinnuskipulagi verknámsstaðar. Samhliða verknámi heldur nemandi nákvæma dagbók þar sem viðfangsefni verknámsins, hugleiðingar, greiningar, áætlanir og reynsla eru skráð. Nánari upplýsingar er að finna í námskeiðslýsingum viðkomandi námsleiðar. Skipulag skólársins 2026 - 2027 í ferðamáladeild 24.08 – 27.08 (vika 35) 24. ágúst - 25. ágúst - Nýnemadagar á Hólum - Allir nýnemar 26. ágúst - FER1206 – Ferðamál og viðburðir (FDP, FDV, FVS, FBA-1, FBV1/2) - Hólar 27. ágúst - UMH1406 – Umhverfisfræði (FBA-1, FDP, FVS, FBV-2) VBS2106 Inngangur að viðburðastjórnun (FDV, FVS, FBV-1) 07.09 – 11.09 (vika 37) lota 2. og 3. ár – allar námsleiðir grunnnáms Lotur 2. árs á fyrri stuttönn eru haldnar Á NETINU. 7. Sep - VON2806 Vöruþróun og nýsköpun (FBA 2-3, FBV 2-3) 8. Sep - RFV3206 Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun (FBA 2, FBV 2) 9. Sep - ÞJS2106 Þjónustustjórnun (FBA 2) 10. Sep - UMH1406 - Umhverfisfræði (FBA-1, FDP, FVS, FBV-2) -> ef þarf vegna kennslu bæði á 1. og 2. ári. 09.10 (vika 41) Brautskráning að hausti 12.10 – 16.10 (vika 42) Prófavika 19.10 (vika 43) Seinni stuttönn hefst 02.11 – 6.11 (vika 45) Allar námsleiðir grunnáms - öll ár Staðbundin lota 1. árs er haldin á Hólum í Hjaltadal Staðbundin lota 2. ög 3. árs er haldin í Reykjavík 2. nóvember - VNS1006 Verklag í námi og starfi (FBA-1, FSG-1, FDP, FDV) – Hólar BYF2006 - Byggðaþróun (FBA-2) - Rvk 3. nóvember - MAR1306 Markaðsfræði (FBA-1, FSG-1, FDP, FDV) - Hólar HFU2306 Hönnun ferðaþjónustuumhverfis (FBA-2) - Rvk 4. nóvember - FJR1106 – Fjárhagur og rekstur (FBA-1, FBV-1, FDP, FDV) - Hólar RFV3206 – Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun (FBA-2, FBV-2, FVS) - Rvk 5. nóvember - FJR1106 – Fjárhagur og rekstur (FBA-1, FBV-1, FDP, FDV) - Hólar UHV4606 – Upplifunarhönnun og viðburðir (FVS, FBV-2) - Rvk 07.12 – 11.12 (vika 50) Prófavika 14.12 (vika 51) Jólaleyfi hefst 05.01 – 06.01 (vika 1) Sjúkra- og endurtökupróf vegna haustannar 11.01 (vika 2) Kennsla hefst á vorönn 01.02 – 05.02 (vika 5) Staðbundin lota - öll ár, allar námsleiðir í grunnnámi 01.03 – 05.03 (vika 9) Prófavika 08.03 (vika 10) Seinni stuttönn hefst 22.03-28.03 (vika 12) Gert er ráð fyrir kennslu virka daga í dymbilviku og að páskaleyfi sé frá og með skírdegi, til og með öðrum degi páska. Páskaleyfi 25.-29. mars. 05.04-09.04 (vika14) Staðbundin lota - öll ár, allar námsleiðir í grunnnámi 26.04 – 30.04 (vika 17) Prófavika 03.05 – 07.05 (vika 18) Staðbundin lota hjá nemendum á fyrsta ári í ferðamálafræði BA og diplómunámi í ferðamálafræði á fyrsta ári (NÁT og GÖL). 11.05 – 12.05 (vika 19) Sjúkra- og endurtökupróf vegna vorannar 04.06 (vika 22) Brautskráning að vori Fiskeldis- og fiskalíffræðideildKennslufyrirkomulag Skólaárinu er skipt í þrjár annir; haustönn, vorönn og sumarönn. Námskeið spanna ýmist alla önnina eða hálfa önn, svokallaða stuttönn. Nemendur geta valið að vera í fullu námi eða að taka aðeins valin námskeið á hverri önn og dreifa náminu þannig á lengri tíma. Hluti af námi nemenda fer fram á verknámsstað hjá viðurkenndu fiskeldisfyrirtæki þar sem nemandi öðlast reynslu af fjölbreyttum verkefnum og sjálfstæði í starfi. Í diplómunáminu vinnur hver nemandi í tólf vikur í fiskeldisstöð. Nemandinn á að skila eðlilegu dagsverki og skal hann taka þátt í öllum algengum störfum sem unnin eru á viðkomandi eldisstöð. Jafnframt því skal nemandi vinna að umbótaverkefni að eigin vali hjá fyrirtækinu í samráði við stöðvarstjóra og umsjónarmanns verknáms og kennara skólans. Vinnutími tekur mið af vinnuskipulagi verknámsstaðar. Nánari upplýsingar eru í námsskeiðslýsingu viðkomandi námslínu. Skipulag skólársins 2026 - 2027 í fiskeldis- og fiskalíffræðideild 24. ágúst Nýnemadagar Fyrri stuttönn haustannar hefst 24. ágúst - 11.september 1- Inngangur að fiskeldi INF1006180 (kennt á ensku) 24. - 26 ágúst - Kennt á Hólum, nýnemadagar. 27. - 28. ágúst - Ferð um fiskeldi á N og NA landi. 14.september - 23. október 2- Undirstaða rannsókna lífvera í fiskeldi URL1108200 14. sept. - 9. október (kennt á ensku) 19. - 23. október - Staðbundin lota á Hólum (lotan er sameiginleg í námskeiðum 2 og 3) 12. - 30. október 3- Fiskur og vatn FOV1206200 (kennt á ensku) 19. - 23. október - staðbundin lota á Hólum 2. - 20. nóvember 4- Klak og hrogn KOH1306190 11. - 13. nóvember - Staðbundin lota á Hólum 23. nóvember - 11. desember 5- Seiði og frumfóðrun SOF1406120 2. - 4. desember - Staðbundin lota, tengd fiskeldisiðnaðinum á Suðurland 5. og 6. janúar Sjúkra- og endurtektarpróf 11. janúar Kennsla hefst á vorönn 11. janúar - 5. febrúar 6- Áframeldi ÁFR1808120 27. - 29. janúar - Staðbundin lota tengd fyrirtækjum á Reykjanesi (óstaðfest) 8. - 26. febrúar 7- Umhverfismál fiskeldis UMF1706190 17. - 19 febrúar - Staðbundin lota á Hólum 1. - 19. mars 8- Slátrun og vinnsla SOV1506200 (kennt á ensku) 10 - 12. mars - Staðbundin lota á Hólum 22. mars - 9. apríl 9- Sjúkdómar og hreinlæti SOH1604200 (kennt á ensku) 25. - 29. mars - Páskafrí 12. apríl - 7. maí 10- Eldisbúnaður EBÚ1906180 26. - 28. apríl - Staðbundin lota hjá fiskeldisiðnaðinum á Vestfjörðum 11. og 12. maí Sjúkra- og endurtektarpróf 25. maí eða seinna Verknám mun byrja 04.06 Brautskráning að vori HestafræðideildSkipulag skólárið 2026 - 2027 24. ágúst Nýnemadagar Fyrri stuttönn haustannar hefst 5. og 6. janúar 2027 Sjúkra- og endurtektarpróf 11. janúar Kennsla hefst á vorönn 11. og 12. maí 2027 Sjúkra- og endurtektarpróf 22. maí Reiðsýning og brautskráning hestafræðideildar Kennslulotur á Hólum í járningarnámi 2026-2027 24.-28. ágúst 26.-30. október 11.-15. janúar 8.-12. mars 10.-14. maí facebooklinkedintwitter