Skip to main content

Búnaður nemenda við Hestafræðideild

Hesthús og hnakkar

Nemendur þurfa sjálfir að koma með nauðsynlegan búnað til að nota við námið í Hestafræðideild HÍ á Hólum. 

Búnaður sem þarf allan námstímann:  

  • Viðurkenndur öryggisreiðhjálmur 
  • Reiðhanskar 
  • Reiðskór eða reiðstígvél 
  • Vandaður gæðahnakkur 
  • Stallmúll með taum 
  • Beisli og góð hringamél, mismunandi lengdir og gerðir (10,5-11,5cm) 
  • Enskur og þýskur reiðmúll 
  • Langir reiðtaumar 2,40-2,60 m 
  • Reiðpískur 1,00-1,20 m 
  • Hringtaumspískur 
  • Hringtaumsmúll (helst með heila járnspöng) 
  • Hringtaumstaumar (hringteymingar-taumar), breidd 1-2 cm — lengd: 2 x 8-12m eða 1 x 16-20 m 
  • Hringtaumsgjörð 
  • Hliðartaumar (án teygju) 
  • Hófhlífar af mismunandi gerð og þyngd (a.m.k. einar 70-90 g kvarthlífar og einar þyngri) 
  • Snúrumúll 
  • Vaður 7-8 m 

Á vorönn á 1. ári þarf nemandinn einnig að koma með íslenskar gæðastangir. 
Á haustönn á 2. ári er mælt með að nemandinn eigi „micklem multibridle“.