
Aðalbygging á Hólum er opin frá 8-16 alla virka daga. Nemendur komast inn með kóða utan opnunartíma. Bókleg kennsla fer fram í aðalbyggingunni á Hólum og þar eru staðbundnar lotur haldnar. Skrifstofa kennslustjóra og starfsfólks hestadeildar er í aðalbyggingu.
Hesthússvæðið er aðeins innar og neðan við íbúabyggðina á Hólum. Svæðið samanstendur af nokkrum byggingum sem er aðalaðstaða verklega námsins í hestafræði. Reiðvegir liggja um allt athafnasvæði Hestafræðideildar og tengjast m.a. reiðvöllum og fjölbreyttum reiðleiðum svæðisins.
Nemendum í hestafræði ber að kynna sér vel reglur sem gilda um notkun og umönnun hesta í þeirri aðstöðu sem nemendur hafa aðgang að á vegum HÍ á Hólum og út frá kröfum mismunandi námskeiða. Við HÍ á Hólum starfar umsjónarmaður skólabús og starfsmenn búsins, nemendum ber að fara eftir tilmælum þeirra varðandi umgengni um aðstöðu í eigu skólans. Nemendur skulu ávallt ganga vel um húsnæði og búnað skólans.
- Brúnastaðir er reiðhöll og hesthús staðsett á hesthússvæðinu við Hóla. Húsið er fyrst og fremst nýtt undir nemendahesta og hesta í eigu skólans. Í suðurenda Brúnastaða er 800 fermetra reiðhöll, Brúnastaðahöllin. Verkleg kennsla í hestafræði fer fram á Brúnastöðum og þar er aðstaða fyrir nemendur til að geyma búnað sinn í sérstökum skápum.
- Útireiðvellir eru við hesthússvæðið. Þar fer fram verkleg kennsla og þjálfun hesta.
- Skólahesthús ásamt reiðhöll sem kölluð er Skólareiðhöllin. Þar fer fram verkleg kennsla en jafnframt er þar aðstaða fyrir bóklega kennslu. Í Skólahesthúsinu er aðstaða til kennslu í járninganámi.
- Þrándarhöll er reiðhöll sem er á hesthússvæðinu, þar fer fram verkleg kennsla og þjálfun.
- Bókasafn HÍ á Hólum er á 3. hæð í viðbyggingu aðlbyggingu á Hólum. Sjálfsafgreiðsla er á útlánum. Upplýsingar um bókasafnið veitir kennslustjóri HÍH og starfsfólk þjónustuborðs. Nemendur HÍH hafa sama aðgang að þjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafni og aðrir nemendur HÍ.
- Líkamsræktaraðstaða er í aðalbyggingu á Hólum, sem nemendur geta nýtt sér. Sundlaug og heitur pottur er við aðalbyggingu en er ekki opin almenningi. Nemendur geta fengið aðgang í samráði við staðarumsjónarmann HÍH.
- Mötuneyti er í aðalbyggingu á Hólum þar sem hægt er að fá hádegismat. Sjálfsali er í mötuneytinu. Engin verslun er á Hólum.
- Öryggismál í HÍ á Hólum. Nemendur geta haft samband við staðarumsjónarmann eða umsjónarmann skólabús ef neyðartilfelli koma upp sem varða húsnæði skólans. Hafa skal samband við Neyðarlínuna 112 vegna veikinda og slysa.
- Faxatorg á Sauðárkróki. Gengið er inn um inngang að austan (til móts við Ráðhús Skagafjarðar) og eru skrifstofur á 1. hæð. Skrifstofur starfsfólks á stoðsviði og stjórnenda eru bæði í aðalbyggingu á Hólum í Hjaltadal og á Faxatorgi.

