Skip to main content

Fundargerð háskólaráðs 5. mars 2026

3/2026

HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2026, fimmtudaginn 5. mars var haldinn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.

Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson, Elísabet Siemsen, Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir (á fjarfundi), Ólafur Pétur Pálsson, Ragný Þóra Guðjohnsen og Viktor Pétur Finnsson (á fjarfundi). Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð. Andri Már Tómasson og Katrín Atladóttir voru fjarstödd og varamenn þeirra einnig. 

1.    Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerð síðasta fundar hefði verið samþykkt, undirrituð rafrænt og birt á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá  og var svo ekki. Ólafur Pétur óskaði eftir að ræða lið 11c, en ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ að öðru leyti og skoðast hann samþykktur.

2.    Fjármál Háskóla Íslands. Staða, horfur, áætlun.
Inn á fundinn komu Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, og Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs.

a.    Drög að ársreikningi Háskóla Íslands 2025.
Jenný Bára gerði grein fyrir framlögðum drögum að ársreikningi Háskóla Íslands fyrir árið 2025. Málið var rætt og svaraði Jenný Bára spurningum. 

b.    Staða og horfur í fjármálum Háskóla Íslands 2026.
Guðmundur R. fór yfir stöðu og horfur í fjármálum og rekstri Háskóla Íslands, m.a. í samanburði við háskóla á hinum Norðurlöndunum, launaþróun við háskóla á Íslandi 2015-2024 og mögulegar sparnaðaraðgerðir í tengslum við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og til frambúðar. Málið var rætt ítarlega og svöruðu rektor og Guðmundur R. spurningum.

Guðmundur R. og Jenný Bára viku af fundi. 

3.    Stefnu- og gæðamál. Staða mála.
Inn á fundinn komu Rögnvaldur J. Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, og Þór Hauksson, stefnu- og gæðastjóri, og fór Þór yfir stöðu mála og tímaáætlun fyrir ytri gæðaúttekt og stefnumótun fyrir Háskóla Íslands sem fram fer á þessu ári. Málið var rætt og svöruðu Þór og Rögnvaldur spurningum fulltrúa í háskólaráði. 

Rögnvaldur og Þór viku af fundi. 

4.    Djúptæknisetur.
Inn á fundinn komu Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og formaður stjórnar Vísindagarða Háskóla Íslands ehf., Þórey Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Vísindagarða, og Hrólfur Jónsson, formaður byggingarnefndar Djúptækniseturs. Sigurður Magnús og Hrólfur gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning Djúptækniseturs á lóð Vísindagarða. Málið var rætt ítarlega. 

Sigurður Magnús, Þórey og Hrólfur viku af fundi. 

5.    Efnisstefna Háskóla Íslands.
Inn á fundinn kom Sigurjón Ólafsson, starfandi vefstjóri á markaðs- og samskiptasviði, og gerði grein fyrir drögum að uppfærðri efnisstefnu fyrir vef Háskóla Íslands. Fram kom að málið hefur verið kynnt fyrir stjórnendum Háskóla Íslands og tillit verið tekið til framkominna athugasemda og ábendinga. Málið var rætt og svaraði Sigurjón spurningum fulltrúa í háskólaráði. 

Sigurjón vék af fundi. 

– Samþykkt.

Kaffihlé.

6.    Rannsóknagagnastefna Háskóla Íslands.
Inn á fundinn komu Halldór Jónsson, sviðsstjóri vísinda- og nýsköpunarsviðs, og Eiríkur Stephensen, innviðastjóri. Gerðu þeir grein fyrir framlagðri tillögu að rannsóknagagnastefnu Háskóla Íslands, en fyrri drög af skjalinu hafa verið kynnt og rædd ítarlega innan skólans. Málið var rætt og svöruðu Halldór og Eiríkur spurningum. Stefnt er að því að afgreiða málið á næsta fundi.

Halldór, Eiríkur og Katrín Jakobsdóttir viku af fundi.

7.    Starfsreglur og siðferðileg viðmið Háskólaútgáfunnar.
Inn á fundinn komu Styrmir Goðason, skrifstofustjóri Háskólaútgáfunnar, og Egill Arnarson, ritstjóri. Kynntu þeir drög að starfsreglum og siðferðilegum viðmiðum Háskólaútgáfunnar sem m.a. eru til komin vegna alþjóðlegs samstarfs útgáfunnar. Málið var rætt og svöruðu þeir Styrmir og Egill spurningum.

– Samþykkt.

Styrmir og Egill viku af fundi. 

8.    Fyrirhuguð endurskoðun á reglum Háskóla Íslands, sbr. fund háskólaráðs 15. janúar sl.
Inn á fundinn kom Trausti Fannar Valsson, dósent við Lagadeild, og gerði grein fyrir hugmyndum sínum um verklagi við endurskoðun á sameiginlegum reglum fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 og tengdum reglum, sbr. fund ráðsins 15. janúar sl. Málið var rætt og svaraði Trausti Fannar spurningum. 

9.    Álit kærunefndar í málefnum nemenda nr. 4/2025 og nr. 5/2025.
Trausti Fannar, sem jafnframt er formaður kærunefndar í málefnum nemenda, gerði grein fyrir álitum nefndarinnar í málum nr. 4/2025 og 5/2025 sem lágu fyrir fundinum. Málið var rætt. 

Trausti Fannar vék af fundi.
– Samþykkt samhljóða að fallast á þau rök sem fram koma í áliti kærunefndar í málefnum nemenda í máli nr. 4/2025 og 5/2025 og er niðurstaða háskólaráðs í samræmi við tillögu nefndarinnar. Viktor Pétur Finnsson greiddi atkvæði á móti. 

10.    Tillaga Hagfræðideildar um kjör tveggja heiðursdoktora.
Rektor gerði grein fyrir tillögum Hagfræðideildar um kjör tveggja heiðursdoktora, en tillögurnar hafa verið samþykktar af heiðurdoktorsnefnd, Hagfræðideild og stjórn Félagsvísindasviðs. Málið var rætt. 

– Samþykkt einróma. 

11.    Bókfærð mál.
a.    Frá rektorsskrifstofu: Stjórn Vigdísarverðlaunanna.
– Samþykkt.

b.    Endurnýjaður samstarfssamningur Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafns Íslands.
– Samþykkt.

c.    Tillaga að breytingu á 52. og 56. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 
Tillagan var rædd og bent á nokkur atriði sem betur mega fara.

– Frestað.

d.    Erindisbréf tilnefningarnefndar.
– Samþykkt.

12.    Mál til fróðleiks.
a.    Brautskráning kandídata í Háskólabíói 20. febrúar 2026 ásamt ávarpi rektors.
b.    Ársskýrsla Hugverkanefndar fyrir árið 2025. 
c.    Úthlutun úr Tækjakaupasjóði 2026.
d.    Fréttabréf Háskólavina, dags. 26. febrúar 2026.
e.    Vísindamenn við HÍ sigruðu í Gullegginu.
f.    Háskóladagurinn 28. febrúar 2026.
g.   Umsóknir um störf forseta Hugvísindasviðs og Menntavísindasviðs

Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 16.10.