Skip to main content
23. febrúar 2026

Þrjár umsóknir um starf forseta Hugvísindasviðs

Þrjár umsóknir um starf forseta Hugvísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þrjár umsóknir bárust um starf forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands en umsóknarfrestur rann út 19. febrúar sl. 

Forseti Hugvísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin fljótlega til starfa.  

Þau sem sóttu um starfið eru:  

  • Haraldur Bernharðsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. 
  • Jón Ólafsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. 
  • Sigrún Lilja Einarsdóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. 

Nýr forseti Hugvísindasviðs tekur til starfa 1. júlí nk., en þá lætur Ólöf Garðarsdóttir, núverandi forseti sviðsins, af störfum.

Aðalbygging