Komdu í HÍ á Háskóladaginn

Háskóli Íslands opnar dyr sínar fyrir landsmönnum öllum á Háskóladaginn laugardaginn 28. febrúar 2026 milli klukkan 12 og 15. Kynningar fara fram í þremur byggingum skólans: í Öskju, á Háskólatorgi og nú í fyrsta sinn í Sögu.
Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra sjö háskóla landsins og hefur fyrir löngu unnið sér sess sem ómissandi vettvangur fyrir þau sem stefna á háskólanám. Þar gefst gott tækifæri til að tala við fólkið sem nemur og starfar í háskólunum um allt sem viðkemur mögulegu námi í framtíðinni.
Háskóli Íslands býður á fjórða hundrað námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi og á Háskóladaginn verður hægt að spjalla við nemendur og kennara úr öllum deildum Háskólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst. Þá verða fulltrúar þeirra fjölbreyttu þjónustueininga sem finna má við HÍ einnig á staðnum og svara spurningum gesta.
Hvað segja nemendur um Háskóladaginn?
Námskynningar á vegum einstakra deilda og fræðasviða Háskóla Íslands verða á eftirtöldum stöðum á Háskóladaginn:
- Félagsvísindasvið: Háskólatorg
- Heilbrigðisvísindasvið: Saga
- Hugvísindasvið: Háskólatorg, Litla torg
- Menntavísindasvið: Saga
- Verkfræði- og náttúruvísindasvið: Askja
Hægt er að sjá hvar einstakar námsleiðir eru kynntar í leitarvél á vef HÍ en þar er líka að finna kort af háskólasvæðinu.
Háskólinn á Hólum verður einnig með námskynningu á Háskólatorgi en eins og kunnugt vinna vinnur hann að því með HÍ að mynda háskólasamstæðu. Á torginu verða einnig fulltrúar frá Keili - Háskólabrú HÍ og Endurmenntun Háskóla Íslands.
Á 2. hæð á Háskólatorgi verða fulltrúar frá Alþjóðasviði sem kynna fjölbreytt alþjóðleg námstækifæri Háskóla Íslands, meðal annars skiptinám og samstarf við háskóla um allan heim sem gefa nemendum kost á að taka hluta af námi sínu erlendis. Slík reynsla hefur oft afgerandi áhrif á námsferil, starfsþróun og alþjóðlega framtíðarmöguleika nemenda.
Einnig verða þar fulltrúar frá Nemendaráðgjöf, Þjónustuborði og Nemendaskrá sem svara m.a. spurningum um umsóknir í HÍ og ýmsa þjónustu og stuðning sem nemendum býðst við skólann.
Á staðnum verða jafnframt fulltrúar Stúdentaráðs og Félagsstofnunar stúdenta sem veita upplýsingar um Stúdentagarða, leikskóla stúdenta og aðra brýna þjónustu.
Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands kynna jafnframt námsframboð sitt í Sögu.
Háskólinn í Reykjavík verður einnig með námskynningu í eigin húsakynnum við Öskjuhlíð og Listaháskóli Íslands kynnir allar sínar námsleiðir í húsakynnum sínum í Stakkahlíð.
Ókeypis verður að nota Hopp hjól þegar ferðast er milli skólanna.
Háskóladagurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.
Frekari upplýsingar um Háskóladaginn má finna á vef Háskóladagsins.
