Skip to main content
23. febrúar 2026

Þrjár umsóknir um starf forseta Menntavísindasviðs 

Þrjár umsóknir um starf forseta Menntavísindasviðs  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þrjár umsóknir bárust um starf forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands en umsóknarfrestur rann út 19. febrúar sl. 

Forseti Menntavísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin fljótlega til starfa.  

Þau sem sóttu um starfið eru:  

  • Freyja Hreinsdóttir, prófessor við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. 
  • Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. 
  • Sigrún Lilja Einarsdóttir, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst. 

Nýr forseti Menntavísindasviðs tekur til starfa 1. júlí nk., en þá lætur Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, núverandi forseti sviðsins, af störfum. 

Saga